26. febrúar 2009

Veljum íslenskt

Mig vantaði nýtt peningaveski og ákvað að kaupa íslenska hönnun og framleiðslu hjá Atson, flott þjónusta þar. Um leið og ég raðaði öllu í nýja veskið fór ég í gegnum gjafakortin mín frá afmælinu mínu í fyrra og komst að því að ég er ríkari en ég hélt, mest átti ég eftir af miðborgarkortinu mínu og "þarf" því nauðsynlega að komast á Laugaveginn fljótlega!

En annars er ég í helv... vetrarfríinu núna, eigum við að ræða það eitthvað!!!
S sagði mér með hneykslun í röddinni áðan frá vini sínum sem var neyddur til að taka viku af sumarfríinu sínu núna. Mér fannst það nú ekki merkilegt, ég hef verið neydd til að taka 4-5 daga af mínu sumarfríi á fáránlegum tíma í nokkur ár.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hva, færðu ekki vetrarfríið borgað eða þarftu að taka part af þínu sumarfríi í vetrarfríinu?
Ég er ekki alveg að skilja þetta system hjá þeim!

Kv, Nína :)

Nafnlaus sagði...

Hva, færðu ekki vetrarfríið borgað eða þarftu að taka part af þínu sumarfríi í vetrarfríinu?
Ég er ekki alveg að skilja þetta system hjá þeim!

Kv, Nína :)

Nafnlaus sagði...

Úpps, sorry, þetta kom tvisar inn hjá mér. :/

Nafnlaus sagði...

Vetrarfríið styttir sumarfríið okkar. Krakkarnir þurfa alltaf að vera 180 daga og því eru krakkarnir til 10. júní í ár í staðinn fyrir 5. júní út af vetrarfríinu.
JH

Nafnlaus sagði...

eeeh við erum ekki með vetrarfrí eftir áramót en samt erum við búin 9. júní....
greinilega öðruvísi talið hérna í austurbænum ;)

og annað...vetrarfrí/sumarfrí eru nú yfirleitt borguð í öllum stéttum atvinnulífsins....

Related Posts with Thumbnails