Ég er vel hálfnuð með hyrnuna úr fallega Kauni garninu úr Nálinni. Ég vildi bara að ég ætti eins fallega prjóna og hún systir mín! Ég á örugglega eftir að prjóna aðra svona þegar Helga fær nýja sendingu með fleiri litum. Ég væri líka til í að gera peysu á mig úr þessu garni.29. desember 2008
Það er svo gaman að prjóna
Ég er vel hálfnuð með hyrnuna úr fallega Kauni garninu úr Nálinni. Ég vildi bara að ég ætti eins fallega prjóna og hún systir mín! Ég á örugglega eftir að prjóna aðra svona þegar Helga fær nýja sendingu með fleiri litum. Ég væri líka til í að gera peysu á mig úr þessu garni.23. desember 2008
22. desember 2008
Allt klárt fyrir jólin
Á morgun er planað að fara í heimsókn til ömmu og afa og borða hangikjöt um kvöldið. Við reynum að fara sem minnst út á Þorláksmessu og aðfangadegi, það er hvort eð er allt ófært út af kirkjugarðinum. Borgar sig nú ekki að stressa sig á svoleiðis umferðarhnútum.
15. desember 2008
Jólasveinar einn og 8 (... hmmm 1 + 8 = 13 ! )
En þessir jólasveinar, þetta er nú meiri snilldin, ég þarf ekki að segja nema einu sinni: burstaðu tennurnar og farðu að sofa. Hvar eru jólasveinarnir hina mánuði ársins þegar maður þarf að segja þessa setningu 14 sinnum sama kvöldið.
Skórinn fór í gluggann að kvöldi 11. des eins og lög gera ráð fyrir.
- 12. des: Stekkjastaur
- 13. des: Giljagaur
- 14. des: Stúfur
- 15. des: Þvörusleikir
- 16. des: Pottaskefill
- 17. des: Askasleikir
- 18. des: Hurðaskellir
- 19. des: Skyrgámur
- 20. des: Bjúgnakrækir
- 21. des: Gluggagægir
- 22. des: Gáttaþefur
- 23. des: Ketkrókur
- 24. des: Kertasníkir
Eins gott að ruglast ekki í þessu, ég man alltaf bara fyrstu þrjá og svo þann síðasta.
mmmmm var að klára risastóra súkkulaðistykkið sem jólaálfurinn minn gaf mér í vinnunni.
Ó, já ég var að kaupa mér nýjustu kvenspæjarabókina, "Bláir skór og hamingja". Ég hlakka ekkert smá til að lesa hana, yndislegar bækur.
5. desember 2008
Mikið fjör
- Ég bakaði fleiri jólasmákökur á mánudagskvöldið
- Þreif og skreytti stofugluggana á þriðjudagskvöldið
- Frábærlega skemmtilegur SPK fundur á miðvikudagskvöldið
- Kennóstelpuhittingur á Jómfrúnni á fimmtudagskvöldið
- Bæjarferð í dag, heimsókn í MMM, smá kikk á Laugaveginn og í Nálina.
- Laufabrauð og piparkökumálun um helgina hjá mömmu
Þannið að það er ekki skrítið þó að ég hafi ekki verið mikið á MSN eða Facebook í vikunni, enda allt í lagi að taka stundum frí þar. Í kvöld er planið að prenta út límmiðana fyrir jólakortaumslögin, prenta út prufu af jólakortunum og reyna að klára dagatölin fyrir prentun. Talandi um prentun! Ég fór í A4 í gær til að kaupa prenthylki fyrir prentarann, þau höfðu hækkað um helming! Það kostaði 10.000 kr að kaupa eitt svart og eitt hvítt hylki. Eins gott að maður er á súperlaunum!
Önnumkafnar jólakveðjur frá Jóhönnu jólaóðu.
