21. júní 2009

world wide knit in public day - prjónum úti dagurinn


Prjónum úti dagurinn var haldinn hátíðlegur víða á landinu í dag. Ég tók þátt við Norræna húsið í Reykjavík. Veðrið var nú ekki eins og við vorum búin að panta, en það var þó logn og milt veður og rigndi eiginlega ekkert. Þátttakan var nokkuð góð og við fengum athygli bæði frá Stöð 2 og Ríkisútvarpinu.

17. júní 2009

ljósmyndastúdíóið í E..skóla

Ég tók mig til síðasta vinnudaginn og tók til í ljósmyndstúdíóinu sem er beint á móti stofunni minni. Það er skemmst frá því að segja að herbergið stækkaði um helming þegar búið var að sópa gólf, henda drasli, ganga frá dóti og þrífa hillur. Nú vantar bara gott nafn á aðstöðuna og mig langar að hanna logo.
Hér eru 4 hugmyndir til að byrja með - ég hef kallað þessa aðstöðu Studio E hingað til en allar tillögur eru vel þegnar.

14. júní 2009

systkinamyndataka hér heima

Systkini mín komu í heimsókn til mín áðan og við tókum myndir af okkur öllum til að gefa afa í 90 ára afmælisgjöf í næstu viku. Síðan borðuðum við saman og áttum skemmtilega stund.

10. júní 2009

tvö teppi í gangi


Ég er að vinna í tveimur barnateppum þessa dagana. Annað þeirra (marglitu dúllurnar) verður mitt framlag í bók sem Nálin ætlar að gefa út síðsumars, hitt er verður gjöf en verður líka í bókinni (bara ekki eftir mig). Ég bjó mér til prjónamerki til að ruglast ekki í munstrinu, eins gott, því annars hefði allt farið í vitleysu.

5. júní 2009

Dagur í lífi mínu - A day in my life

Ég sá þessa hugmynd hjá blogvinkonu minni frá Bandaríkjunum, Ariana, að gera færslu þar sem maður lýsir einum degi í lífi sínu. Mér fannst þetta sniðugt og ákvað að gera þetta líka. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni. Þess vegna eru myndatextarnir bæði á íslensku og ensku svo Ariana geti lesið líka.

Ólöf og Þórunn tilbúnar fyrir skólann.
Ólöf and Thórunn getting ready for school.

Ég sjálf að snyrta mig fyrir daginn.
Me, getting ready for the day.

Svo þarf að tékka á tölvupósti, lesa blogsíður, skoða facebook ...
Then one needs to check email, read blogsites, look at facebook ...

Taka til í eldhúsinu eftir morgunmatinn.
Cleaning the kitchen after breakfast

Brjóta saman þvott.
Folding laundry

Labba yfir til Guðnýjar systur.
Walking to my sister Guðný.


Við systur fórum niður í bæ.
My sister and I went downtown.

Ekið niður Laugaveginn.
Driving down the main shopping street, Laugavegur.

Ég náði í garnið sem ég hef beðið eftir í Nálinni.
Picking up some yarn in the yarnshop Nálin (the needle).

Við fórum líka á Skólavörðustíginn.
Some more shoppingstreets downtown.

Fengum okkur hádegismat á Grænum kosti. Grænmetisfæði er æði.
Eating at a "green" restaurant. I love vegeterian food.

Þegar heim var komið var unnið í þessum tveimur barnateppum sem ég er að búa til.
At home, working on the two babyblankets I´m making.

Ólöf komin heim úr skólanum og strax farin út að hjóla og leika við vinkonurnar.
Ólöf is back from school and going out agin right away to play with her friends.


Ólöf og vinkona hennar Karen að prófa málningardótið mitt.
Ólöf and her friend Karen trying on my makeup stuff.

Ólöf loksins sofnuð eftir langan dag.
Ólöf finally in bed after a long day.

Við Þórunn horfðum á Marley and me áður en við fórum að sofa,
ég notaði tímann og prjónaði í leiðinni.
Þórunn and I watched the movie Marley and me before bed,
I knitted while doing so.

Related Posts with Thumbnails