25. september 2008

Sjóræningjar

Það er nú meira fjaðrafokið í sambandi við Dagvaktina! Þeir ættu að taka þetta sem hrós, hversu margir ætli hafi downloadað Singing Bee? Örugglega enginn.

Kíkið á síðuna sem ég er að búa til í DW.

http://bhs.is/johanna.hoskuldsdottir/johannah/index.html

14. september 2008

Skemmtileg verkefni

Var að vinna í gær og í kvöld að verkefnum í BHS. Hér eru tvær myndir sem ég á að skila í næstu viku í MHL kúrsinum mínum. Við erum að byrja í myndvinnslu. Þetta er rosa skemmtilegt og ég vona að ég læri alveg helling.

10. september 2008

Það rúllar

Þá er vetrarstarfið farið að rúlla, kennslan farin vel af stað, Borgó umræðutímarnir komnir af stað. Rosalega líst mér vel á þetta margmiðlunarnám mitt í Borgó, ekkert smá skemmtilegt.
Við vorum með bekkjarafmæli fyrir Ólöfu á föstudaginn, þar mættu 13 hressar stelpur og frændsystkinin tvö ásamt systur minni sem hjálpaði mér þegar aðrir fjölskyldumeðlimir brugðust. Takk Guðný mín.
Næsta sunnudag verður svo fjölskylduafmæli fyrir Ólöfu, hún tók það ekki í mál, dramadrottningin á heimilinu, að hafa fjölskylduafmæli með systur sinni. Nei takk það er sko ósanngjarnt að Þórunn eigi afmælisköku í "hennar" afmæli. Þannig að við höldum annað fjölskylduafmæli fyrir Þórunni eftir mánuð.
Gullkorn frá Ólöfu: Það var einhver strákur sem sá Guðnýju á ganginum í skólanum og hnippti í Ólöfu og sagði, þarna er mamma þín. Þá sagði Ólöf frekar pirruð í röddinni: sko þessi feita er ekki mamma mín, þessi mjóa er mamma mín. Hahahah best að njóta þess því ég verð ekki þessi mjóa mikið lengur, þ.e. þegar lillan er komin í heiminn.

4. september 2008

Hundraðasti spítukallinn

Jæja þetta er víst færsla númer 100.
Ég er búin að vera í bölvuðu basli með fartölvuna mína, í byrjun síðustu viku bilaði hún og ég fór með hana í viðgerð í EJS, viku seinna hringdi ég og spurði hvort þetta væri ekki að koma. Þá var mér sagt að þeir væru ekki byrjaðir að kíkja á hana, klukkutíma seinna hringdi viðgerðarmaður og sagði mér að harði diskurinn væri ónýtur og samkvæmt ábyrgðinni ætti ég að fá nýjan. Hann spurði líka hvort ég vildi láta bjarga gögnunum mínum. Auðvitað vildi ég það. Á þriðjudaginn var hún svo tilbúin og maðurinn sagði að reikningurinn fyrir gagnabjörguninni væri 15000 kr. Þá hringdi ég í tryggingafélagið sem ég keypti kaskótrygginguna hjá (Elko). Af því að ég vildi að þeir greiddu reikninginn því ef diskurinn hefði ekki verið gallaður hefði ég ekki þurft gagnabjörgun. En það gekk víst ekki og ég borgaði reikninginn.

Þetta er samt ekki það versta, því í öllum þessum hamagangi þurfti auðvitað að strauja vélina og þar með vantar mig allan Adobe pakkann. Tölvuvinur minn lenti í svipuðum hremmingum og diskurinn hans sem geymdi Adobe hrundi, því getur hann ekki hjálpað mér í þetta sinn. Ég er búin að vera að lesa mér til á Torrent síðunni thepiratebay en er orðin alveg rugluð. Þannig að nú er ég alveg ráðalaus, ef einhver getur gefið mér eintak væri það vel þegið.
Related Posts with Thumbnails