Sýnir færslur með efnisorðinu veður. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu veður. Sýna allar færslur

23. júní 2015

Sumar á sunnudögum

Ætli sumarið verði svona, bara sumar á sunnudögum eins og tvo síðastliðna sunnudaga? Þá er um að gera að njóta á meðan er, kasta öllu frá sér og nota blíðuna. Ég byrjaði sunnudagsmorguninn á því að hjóla í sund og svo naut ég veðurblíðunnar á svölunum það sem eftir var dags.
Prjónaði svolítið ...
Fékk mér hádegismat ...
 Naut blómanna sem ég er búin að planta ...
 Prjónaði svolítið meira ...
 Blandaði bleikan sumardrykk ...
Það þarf ekki að vera flókið að njóta lífsins, einfaldleikinn er stundum bestur. Ég vona að við fáum aðeins meira en bara sunnudaga með veðurblíðu í sumar, en ef svo fer ekki þá er bara að klæða sig og haga seglum eftir vindi.

20. apríl 2014

Gleðilega páska

Vonandi fer nú veðrið að skána, svona umhleypingar geta nú varla varað lengi.

12. janúar 2014

Ári eldri

Ég er þakklát fyrir afmælisdaga, gaman að fá fjölskyldu og vini í heimsókn. Dæturnar voru sætar í sér, sú yngri gerði skemmtilegt myndband fyrir mig og gaf mér ávísun á dekur og sú eldri og kærastinn gáfu mér hvítvín og kælifötu. Ég bíð spennt eftir prjónuðu afmælisgjöfinni frá systur minni sem er alveg að verða tilbúin. Bróðir minn og hans fjölskylda komu með fótakrem sem verður örugglega mikið notað þegar ég tek út dekurgjöfina frá þeirri yngri. Mamma og pabbi færðu mér peninga sem ég er næstum búin að ákveða hvað verður keypt fyrir. Tengdó komu með með fallegan blómvönd. Ég gaf sjálfri mér þennan vasa sem er á myndinni. Góður dagur þó veðrið hafi haldið sumum gestunum heima.
Framundan er nýtt og spennandi ár, uppfullt af venjulegum atburðum og vonandi líka fullt af nýjum og óvæntum atburðum, ég elska breytingar, að takast á við eitthvað nýtt og spennandi.

15. desember 2013

þriðji

Þriðji sunnudagur aðventu að kvöldi kominn, allir sofnaðir og kyrrð og ró yfir mér og friends sem rúlla í sjónvarpinu. Í dag var merkilegur dagur, litla óskastjarnan, þriðja ömmubarnið mitt fékk nafnið sitt. Heimasætan og kærastinn sungu í kirkjunni og tókst það líka svona ljómandi vel. Hvernig er hægt annað en að dást að þessu unga, hæfileikaríka fólki. 
Mágkona mín og bróðir eignuðust dóttur í kvöld. Mágkona mín á líka afmæli í dag svo hún fékk risastóra afmælisgjöf þetta árið. Ég hlakka til að hitta nýju frænku mína á morgun.
Veðrið hefur verið svo fallegt og jólalegt undanfarið, það snjóar í logni og alls staðar er umhverfið eins og á póstkorti, drifhvítur snjór yfir öllu, stillt veður og dásamlegt. Nú nálgast útskrift heimasætunnar óðfluga, undirbúningurinn mjakast áfram. Þetta gengur allt saman þegar allir hjálpast að.

21. júlí 2013

Beðið eftir sumrinu



 Einn morguninn í síðustu viku hellirigndi og svo kom smá skúr með hagléli líka um leið. Þvílíkt veður þetta sumarið, eins gott að maður hafi eitthvað til að dunda sér við í rigningunni.
Um hálftíma seinna var komin sól sem entist í um 20 mínútur, en snjórinn bráðnaði samt!
 Þessi peysa er á 0-3 mán. og verður vonandi heimferðapeysa litlu Söndrudóttur sem er von á um mánaðarmótin ág-sept. Hún er úr yndislega mjúku Isager ullargarni. Ég er alveg að verða búin með hana, á bara eftir hnappagatalistann og að velja tölur.

 Þessir sokkar/vettlingar eru alltaf góðir, ég ætla að prjóna nokkra svona fyrir litlu snúlluna.
Og svo er það þessi typiska djöflahúfa sem öll ungbörn verða að eiga. Sokkana og húfuna er ég að gera úr garninu frá henni Önnu í Textílgarni. Dásamlega mjúkt og yndislegt og ekki skemmir fyrir hvað það er ódýrt.
Annars er sumarið búið að fara í aukavinnuna, prjónaskap, bæjarferðir, vinkonuhittinga og síðast en ekki síst heimsókn ættingjanna frá Chicago. Mikið er skemmtilegt að hitta fólkið sitt og kynnast því alveg upp á nýtt.

19. maí 2013

Innidagur

 Þegar veðrið lætur eins og það sé ekki komið sumar er gott að hafa það huggulegt inni.
Kannski prjóna svolítið í tweed kaðlapeysunni sem er nú alveg að klárast. Bakstykkið og bæði framstykkin eru búin. Ég ákvað að prjóna ermarnar báðar í einu þar sem kaðlarnir og útaukningarnar eru það flóknar að best er að gera þetta allt saman á sama tíma.

Svo er spurning um að baka eitthvað gott með kaffinu á eftir.

4. maí 2013

Víst mun vorið koma

Það er alveg kominn tími á að það hætti að snjóa, er það ekki?

http://miinaa69.tumblr.com/post/25468768842


13. júní 2012

Textílgarnssláin tilbúin

Ég var að klára að prjóna textílgarnsslána mína, júhú. Ég er svo hræðilega lengi að prjóna (mest út af því að ég hangi öll kvöld í tölvunni í stað þess að nota tímann til að prjóna), ég byrjaði á þessari einföldu flík í ágúst í fyrra þegar prjónaklúbburinn minn fór á kynningu á Textíl-garni en það er lítið heimafyrirtæki sem selur gæðagarn á góðu verði. Ég notaði prjónamerki til að ég þyrfti ekki að telja á milli í úrtökunum og var svo snjöll að gleyma að taka eitt úr þegar ég var komin að hálsmálinu. Mér finnst það samt svolítið flott og er að spá í að hafa bara merkið þarna.

Nú eru aðeins örfáir sólarhringar í Ítalíuferðina mína og ég að verða heldur betur spennt. Búin að skoða veðurspána fyrir svæðið og það spáir um 30°C hita og sólskini flest alla dagana, sem er svona í það heitasta fyrir minn smekk en þar sem við verðum uppi í fjöllum mest allan tímann vona ég að þetta verði bærilegt.

Sumarfríið mitt langþráða hófst um hádegi í gær og svo byrja ég aftur að vinna 12. ágúst þannig að framundan eru tveir heilir dásamlegir mánuðir sem verða örugglega notaðir í einhver skemmtileg verkefni.

29. desember 2011

fegurðin ein

 Fallegustu stelpurnar í bænum.
 Fallega fjölskyldan mín kom í mat til okkar á annan í jólum.
 Fallegt jólaveður, vona samt að það hætti að snjóa bráðum.
 Fallegar bollakökur í fallega kökuhjálminum sem við fengum í jólagjöf.

 Fallegi blómagatarinn minn getur klippt út svona fallega miða sem ég fann á Pinterest
Horfum á fallegu hliðar lífsins og njótum þess að vera til.

18. desember 2011

Óveður

18. desember: Nú ÞARF ég að fara að klára jólagjafakaupin, ótrúlega margar gjafir sem ég á eftir að finna.
Við fórum yfir heiðina í morgun til að sækja sætu spætuna sem hafði fengið leyfi til að gista hjá bestu frænku. Veðrið var nú ekkert að leika við okkur, mikill skafrenningur mest alla leið, heldur verra á leiðinni til baka en austur.
Á meðan minnsta skyggnið var þurftum við að keyra á 30 km/klst. Ekki mínar uppáhaldsaðstæður, verð að segja það.
Related Posts with Thumbnails