Ég var að klára að prjóna textílgarnsslána mína, júhú. Ég er svo hræðilega lengi að prjóna (mest út af því að ég hangi öll kvöld í tölvunni í stað þess að nota tímann til að prjóna), ég byrjaði á þessari einföldu flík í ágúst í fyrra þegar prjónaklúbburinn minn fór á kynningu á Textíl-garni en það er lítið heimafyrirtæki sem selur gæðagarn á góðu verði. Ég notaði prjónamerki til að ég þyrfti ekki að telja á milli í úrtökunum og var svo snjöll að gleyma að taka eitt úr þegar ég var komin að hálsmálinu. Mér finnst það samt svolítið flott og er að spá í að hafa bara merkið þarna.
Nú eru aðeins örfáir sólarhringar í Ítalíuferðina mína og ég að verða heldur betur spennt. Búin að skoða veðurspána fyrir svæðið og það spáir um 30°C hita og sólskini flest alla dagana, sem er svona í það heitasta fyrir minn smekk en þar sem við verðum uppi í fjöllum mest allan tímann vona ég að þetta verði bærilegt.
Sumarfríið mitt langþráða hófst um hádegi í gær og svo byrja ég aftur að vinna 12. ágúst þannig að framundan eru tveir heilir dásamlegir mánuðir sem verða örugglega notaðir í einhver skemmtileg verkefni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli