29. júní 2012

Aftur til hversdagsleikans

create animated gif
how do you make a gif at gickr.com
Ég kom heim úr húsmæðraorlofinu mínu til Ítalíu aðfararnótt þriðjudags. Ferðin var einu orði sagt dásamleg. Staðurinn sem við gistum flestar nætur á, lítið 300 manna fjallaþorp, Corfino, var eins og klipptur út úr póstkorti. Litlar götur, falleg hús, blóm alls staðar, yndislegt fólk. Hópurinn sem fór í þessa ferð var einstaklega vel samsettur og skemmtilegur en eins og allir vita er það ekki sjálfgefið.


 Þetta er umferðargata, maður þurfti að stökkva inn í dyragætt til að hleypa framhjá.
Þvottasnúrurnar voru almennt utan á húsunum og þar var engin feimni, stórar ömmunærur héngu við hliðina á handklæðum og borðdúkum.

how to make a gif

Þetta er aðalfjallið, Pania di Corfino. Þorpið er í 840 m hæð yfir sjávarmáli og fjallið er annað eins. Við fórum ekki upp á efsta toppinn heldur í gegnum skarðið sem örin bendir á. Þetta var 10 km leið sem tók okkur um 5 klst með klukkutíma stoppi á barnum þarna upp (sem var því miður ekki opinn), hækkunin var um 600 m.
Í lok ferðarinnar tókum við E lest til Pisa og kíktum á skakka turninn. Það var stórkostleg upplifun. Turninn var stærri, marmarinn hvítari og hallinn meiri en ég hafði gert mér í hugarlund. Þá hefur enn eitt atriði bæst á listann hjá mér yfir merkilega staði í útlöndum sem ég hef séð með eigin augum. 
  • San Marino smáríkið á Ítalíu, 1987.
  • Feneyjar, Ítalíu, 1987 og 2000.
  • Akropolis hæð í Aþenu, Grikklandi, 1990.
  • Uffici safnið í Flórens, Ítalíu, 2000.
  • Stonehenge, Bretlandi, 2003.
  • Skakki turninn í Pisa, Ítalíu, 2012
Það er spurning hvað verður næst, mig langar að sjá Eiffel turninn í París, Frelsisstyttuna í NY og örugglega margt fleira.

Ferðin var sem sagt mögnuð upplifun og kemst engan veginn fyrir í þessum pósti. Hversdagsleikinn skall hins vegar harkalega á þegar heim kom, þrif, eldamennska, þvottur og annað slíkt sem tilheyrir heimilishaldi. En ég get yljað mér við minningar um hrikalega skemmtilega ferð.

3 ummæli:

Kristín Hrund sagði...

Skemmtilegar myndir! :-) Manni langar að stökkva beint uppí næstu flugvél!

frugalin sagði...

Já Kristín Hrund, ef þú hefur tækifæri til að stökkva skaltu gera það!

Kristín Hrund sagði...

Reyndar hef ég ekki tækifæri til þess en maður getur þó alltaf látið sig dreyma&skoðað skemmtilegar myndir! :-)

Related Posts with Thumbnails