Já, já það er satt, mín er orðinn trúnaðarmaður fyrir kennarana í Engjaskóla. Fyrst fundurinn er á morgun. Við Elín, varatrúnó, förum saman í fyrramálið kl. 9 - 11. Ég held þetta verði ágætt. Einar sagðist myndi hjálpa til við að dreifa blöðum ef ég tæki þetta að mér, ég ætla að taka hann á orðinu og demba á hann Skólavörðunni í fyrramálið, hehe.
Guðný, Svala, Ingibjörg og ég fórum á kynningu fyrir handavinnukennara í Föndru í kvöld. Maður gæti nú alveg gleymt sér þarna í nokkra daga! Ég keypti mér pappír til að föndra tölustafi úr til að hafa í stærðfræðistofunni minni. Ég ætla að gera talnarunu frá 1 - 20 og jafnvel hærra og setja svo hring undir prímtölurnar. Mér finnst þetta svo frábært kerfi sem við vorum að taka upp í vetur með að faggreinaskipta kennslunni, þetta er miklu léttara og nú get ég gert allt mögulegt til að gera kennsluna meira líflega og skemmtilega því ég hef svo mikinn tíma.
Á morgun verður svo fyrsta partýið, jibbý.
Hið árlega golfmót fjölskyldunnar hans Sigga verður svo á laugardaginn, byrjar kl. 4 og endar svo á partýi, sem verður víst haldið heima hjá okkur ef ég hef skilið Sigga rétt.
Ég er búin að fá bókalista fyrir íslenskunámið mitt, en veit samt ekki ennþá hvenær það byrjar. Ég þarf endilega að muna að senda kennaranum póst og spyrja nánar út í þetta fjarnám.
Siggi ætlar líka að drífa sig í nám. Það er boðið upp á rafvirkjanám fyrir vélstjóra, aðeins 9 einingar í viðbót og þá er maðurinn orðinn rafvirki. Hann tekur 5 einingar í fjarnámi á haustönn og 4 á vorönn og byrjar á laugardaginn. Þetta verður upptekin fjölskylda í vetur!
Ólöf mín er byrjuð í skólanum og það hefur gengið mjög vel, en ekki eins vel að koma henni í gæsluna. Ég klikkaði auðvitað á því að byrja að tala um gæsluna um leið og ég byrjaði að tala um skólann í febrúar til að venja hana við tilhugsuninni. Það er ekki eðlilegt hvað hún á erfitt með að venjast nýjum aðstæðum. En nú er þetta allt komið held ég, hún fór allavega í gæsluna bæði fyrir og eftir skóla í dag. Ég sótti hana svo snemma í dag og við fórum aðeins í heimsókn á leikskólann. Hún var nú hálf feimin að koma þarna inn aftur eftir svona langt hlé.
30. ágúst 2007
19. ágúst 2007
Byrjuð að vinna

Ég byrjaði að vinna á miðvikudaginn. Það er nú alltaf ágætt að mæta aftur eftir sumarfrí þó ég hefði alveg getað hugsað mér að vera 2-3 vikur í viðbót í fríi. Ég er að fá nýjan nemanda í bekkinn minn, það er stúlka sem kemur frá Texas í Bandaríkjunum. Hún talar enga íslensku og ekki mamma hennar heldur. Pabbi hennar er íslenskur en hefur búið úti í 25 ár, talar litla íslensku en skilur hana vel. Mamman og stelpan komu í viðtal til mín á föstudaginn og ég talaði auðvitað við þær á minni "reiprennandi og lýtalausu" ensku, en það var svo skrítið að það var eins og þær mæðgur skildu mig svo illa! Ég hefði átt að spyrja bara "are you married?" eins og sumir hefðu gert ;-)
Við fórum í afmæli til Brynju og Bogga á föstudaginn, það var frábært. Þórunn var að passa og Ólöf var ekki alveg sátt, þannig að ég skrapp heim um kl. 10 til að koma Ólöfu í rúmið. Ólöf sofnaði svo upp úr hálf ellefu og ég sofnaði mjög skömmu síðar. Ég vaknaði svo um hálf eitt og dreif mig aftur í partýið, ég er svo mikil partýmanneskja, eða þannig!
Við fórum svo á tónleika á Miklatúni í gærkvöldi og enduðum daginn á flugeldasýningunni. Tónleikarnir voru mjög góðir og ég notaði tækifærið og tók myndir af flugeldunum með þrífætinum á tíma.
Og síðast en ekki síst ... ég keypti mér fartölvu í dag. Dell, Vostro, 1500. Vonandi frábær vél, sölumaðurinn sagði a.m.k. að ég yrði ekki svikin af þessari. Nú er batteríið í hleðslu, Gunnar er búinn að koma og græja þráðlausa netið fyrir mig (takk Gunnar) og svo vantar mig bara aðeins að tala við Magna, út af sottlu. Þá er allt klárt.
kl.
20:12
Engin ummæli:
13. ágúst 2007
Mánudagur
Við komum í gær heim úr ferðalagi um Eyjafjörð. Við byrjuðum á að gista í sumarbústað á vegum Kennarasambandsins innan við Akureyri. Þetta var svo sem ágætur bústaður, rúmgóður og vel búinn í eldhúsinu. En dýnurnar í rúmunum og sófinn í stofunni var ónýtt! Það er ekki hægt að lýsa því neitt öðruvísi, óþolandi þegar maður borgar stórfé fyrir gistingu og fær svo óþægileg rúm. Dagskráin var þéttskipuð hjá okkur þessa fimm daga sem við vorum fyrir norðan. Við röltum um miðbæ Akureyrar, fórum á handverkssýninguna á Hrafnagili (mjög flott), fengum okkur súpu í heimahúsum á Dalvík á föstudagskvöldið, tókum þátt í Fiskideginum mikla á Dalvík á laugardeginum, Siggi fór tvisvar með krakkana að veiða á bryggjunni á Ólafsfirði og að lokum kíktum við á sveitamarkaðinn sem er beint á móti Jólahúsinu í Eyjafirði. Þar er hægt að kaupa ótrúlega gott brauð o.fl. Við komum heim í gær, það væri óskandi að hægt væri að komast á milli landshluta hraðar!
Í morgun fór ég svo upp á verkstæði að vinna, kom heim um hádegi, þá fórum við mæðgur í EJS að skoða fartölvur. Ég held að ég sé loksins búin að finna tölvuna "mína". Ég reyndi að kaupa hana en hún var uppseld og ég er á biðlista. Hún kemur í lok ágúst.
Í morgun fór ég svo upp á verkstæði að vinna, kom heim um hádegi, þá fórum við mæðgur í EJS að skoða fartölvur. Ég held að ég sé loksins búin að finna tölvuna "mína". Ég reyndi að kaupa hana en hún var uppseld og ég er á biðlista. Hún kemur í lok ágúst.
5. ágúst 2007
Bíll á umferðareyju

Þessi bílstjóri hefur keyrt aðeins of hratt, a.m.k. náði hann ekki beygjunni á hringtorginu við Engjahverfið/Víkurhverfið. Ég hló svo mikið að ég var viss um að allar myndirnar yrðu hreyfðar. Ég kom að þessu þegar löggan var að tala við strákinn (svona 17-18 ára). Stuttu seinna kom vinur hans og sótti hann og þeir brunuðu burt á öðru hundraðinu, þvílíkir hálfvitar, ég vona bara að þeir drepi engan!
kl.
16:20
Engin ummæli:
3. ágúst 2007
Vantar kennara?

Í fréttunum í gær var talað um að nú væri ástandið í ráðningarmálum kennara ekki gott fyrir komandi vetur. Gott á fræðsluyfirvöld segi ég nú bara. Ekki veit ég af hverju yfirvöld eru að reyna að halda uppi menntun í þessu landi, ekkert má hún kosta. Þeir vilja örugglega helst ráða bara leiðbeinendur, það er ódýrast. Það verður forvitnilegt að fylgjast með umræðum um kjaramál kennara í vetur. Það eru margir kennarar að hugsa sér til hreyfings, þ.m.t. undirrituð.
Ég fór út að mynda í gær og fann þessa fínu lirfu. Henni finnst baldursbrár greinilega mesta hnossgæti, sjáið bara blómin vinstra megin við hana.
kl.
11:27
Engin ummæli:
2. ágúst 2007
Skólagarðar
Við mæðgur fórum í skólagarðana í morgun. Það var nú alveg kominn tími til, því garðurinn var fullur af arfa. Við hjálpuðumst að að reyta arfann, taka upp og vökva. Stelpurnar urðu síðan eftir í garðinum og ég fór heim og hafði það huggulegt, settist út á pall í sólbað með góða bók. Ég er að lesa If you could see me now eftir Cecilia Ahern. Hún fjallar um strák sem á ímyndaðan vin. Mér finnst hún mjög skemmtileg.
kl.
16:43
Engin ummæli:
1. ágúst 2007
Jarðaber og ströndin


Við erum að rækta jarðaber á pallinum hjá okkur. Ólöf sagði að nú þyrftum við aldrei aftur að kaupa jarðaber. Uppskeran er nú ekki svo mikil, við fáum eitt ber á 2-3 vikna fresti. Við fáum berin í þessari röð: fyrst fær Ólöf, svo Þórunn, svo ég og síðastur er Siggi. Við erum öll búin að fá eitt ber nema Ólöf er búin að fá tvö. Þórunn fær þetta sem er orðið rautt á myndinni.
Við mæðgur skelltum okkur á ströndina í Nauthólsvík seinnipartinn í dag. Þessi strönd er nú alveg frábær í svona góðu veðri. Stelpurnar tóku sundfötin með og ég sat upp við húsið og las.
Við mæðgur skelltum okkur á ströndina í Nauthólsvík seinnipartinn í dag. Þessi strönd er nú alveg frábær í svona góðu veðri. Stelpurnar tóku sundfötin með og ég sat upp við húsið og las.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
