Sýnir færslur með efnisorðinu útsaumur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu útsaumur. Sýna allar færslur

6. desember 2011

Erill


Er svo þreytt eftir kennsluna, fundinn og útsaumsnámskeiðið í kvöld að ég verð að setja inn dagatalsmynd dagsins á morgun.

Það sem ég þrái jólafrí núna og það hjálpar nú ekki til að þurfa sífellt að vera að leysa snjóstríðsvandamál hjá nemendum mínum. Umsjónarkennarastarfið er ekki alltaf dans á rósum.

4. desember 2011

Útsaumur

4. desember: Ég hef nú ekki verið að smíða um helgina, nema það að negla nagla í vegg teljist smíðar. Ég hengdi semsagt upp ljósmynd sem hefur staðið á hillu hjá mér í rúmt ár, og það tók örugglega alveg eina mínútu að ljúka við þetta. Ég þoli ekki svona slóðaskap, ég er alltaf að reyna að taka mig á og klára þau verkefni sem ég byrja á eða þarf að ditta að hér heima, þetta er svo lítið mál þegar maður byrjar loksins.


Í haust höfum við systur verið á útsaumsnámskeiði hjá Helgu Jónu í Nálinni. Ég er að sauma mér handavinnupoka úr ótrúlega fínlegum hör sem ég átti í erfiðleikum með að sjá almennilega og frestaði því að halda áfram með, en tímarnir eru á 5-6 vikna fresti. Nú er síðasti tíminn í næstu viku og ekki seinna að vænna að halda áfram, ég brá mér því inn í Tiger á Laugavegsröltinu í gær og keypti mér útsaumsgleraugu. Nú get ég saumað eins og mig lystir. Ég þarf líka að klára prjónaveskið mitt með smá útsaumi og svo er það kaffidúkurinn á eldhúsborðið sem ég byrjaði á fyrir nokkrum árum og prjónaveskið.
Ég gerði auðvitað eins og mér var kennt á Spáni í sumar að velja hlutinn sem er minnst eftir af því hann er vinsælastur og þar með flottastur. Glæsileg gleraugu, ekki satt?
Related Posts with Thumbnails