30. mars 2014

Vorið nálgast

Sl. miðvikudag (26. mars) setti ég nokkra páskaliljulauka í krukkur eins og ég hafði séð á Pinterest fyrr í vetur. Ég keypti laukana í janúar og stakk þeim í ísskápinn því það stóð í leiðbeiningunum. Nú bíð ég spennt að sjá hvað gerist.
Þetta smábrum var komið af stað í ísskápnum og ég sá engan mun tveimur dögum seinna. Vonandi hefur eitthvað gerst um helgina en krukkurnar eru í kennslustofunni minni.
Silkihúfan úr kínagarninu er tilbúin og liggur til þerris. 



17. mars 2014

Prjón

Ég sá mynd af svona ótrúlega krúttlegri húfu á Pinterest um daginn og ákvað að prófa. Það var engin uppskrift, og ég ákvað að nota bara afganga, svo ég reiknaði út prjónafestu, fann á Pinterest stærðartöflu yfir höfuðmál og út kom þessi krúttlega ugluhúfa sem passar sennilega á 0-2 mán.
Í stíl við húfuna gerði ég svo þessar hosur. Ef vel er að gáð sést að á þeim eru líka uglur. Ég fann uppskrift sem ég byggði á á Ravelry en þar átti að byrja á stroffinu. Ég þurfti hins vegar að byrja á ilinni til þess að geta prjónað uglurnar í "rétta" átt.
Ég er í nokkrum handavinnugrúppum á facebook og í einni þeirra setti einhver fram mynd og sagðist hafa pantað dásamlega mjúkt og yndislegt garn frá Kína, hún gaf upp slóð á söluaðilann og þar sem ég er svolítið smeyk við að panta garn sem ég hef ekki komið við ákvað ég að prófa þetta garn. Það tók 3 vikur fyrir garnið að komast til Íslands frá Kína og það var engin lýgi að garnið er undur mjúkt enda segir seljandinn að það sé 85% silki og 15% bambus. Með fylgdu 4 stk af bandprjónum nr 2.
Ég fitjaði upp á silkihúfu og hélt nú að ég yrði heila eilífð að komast eitthvað áfram með svona fíngert garn en þetta skotgengur.
Nú er ég búin með eyrun með böndum og búin að tengja í hring.




16. mars 2014

Hollusta

Við mæðgur fórum á prjónakaffi í gærmorgun. Alveg stórskemmtilegt eins og alltaf en þar fengum við uppskrift af hráköku frá lifraent.is sem heitir snickerskaka. Sæta spætan vildi alveg ólm prófa því í uppskriftinni er slatti af hnetusmjöri sem hún dýrkar en ég dái minna. Kakan heppnaðist alveg súper vel, sætunni fannst hún æði og mér fannst hún bara glettilega góð, það var nefnilega ekki svo mikið hnetusmjörsbragð af henni eftir allt saman.
Related Posts with Thumbnails