25. mars 2010

Smíðavinna að mínu skapi


Kíkið á þennan link, þarna er kona sem hefur frábærar hugmyndir og framkvæmir þær ... og engar smá hugmyndir

23. mars 2010

Frú Galin er ekki svo galin

Nú stendur yfir "hreiðurgerð" áður en strákurinn Tinni kemur til okkar. Við erum búin að breyta í stofunni og holinu, að vísu gekk það ekki stórslysalaust, það stórsér á parketinu eftir brussuganginn í mér.
Næsta mál var svo að kaupa bæli fyrir hvolpinn. Ég fór í leiðangur í dag að skoða hundabæli í RL, IKEA og Garðheimum. Fann ekkert sem ég gat hugsað mér að hafa inni hjá mér, Það sem var til í RL kostaði 3000 kr og var algjört rusl. En í IKEA fann ég tvo gardínuvængi í pakka á tilboði á 1190 kr, sennilega svona 6 m af flottu gæðaefni. Ég ætla að nota það til að gera koddaver utan um gamlan kodda og nota það sem hundabæli fyrir Tinna minn. Síðan ætla ég að nota sama efni til að sauma nýjar pullur á ruggustólinn, sko eftir að ég mála hann hvítan og lími hann upp.
Þá er bara eftir að kaupa grind fyrir hvolpinn svo hann sé öruggur þegar við erum ekki heima. Fer í það í páskafríinu.
 Tinni orðinn rúmlega 6 vikna og bara tæpar 4 vikur þar til við sækjum kappann. Mynd frá Söru.

14. mars 2010

Snilldarferð SPK

 


 SPK klúbburinn fór í húsmæðraorlof á Flúðir um helgina. Þar var mikið hlegið, prjónað, heklað, borðað og farið í pottinn. Við skemmtum okkur vel saman allar 14. Við söknuðum samt þeirra sem ekki komust með!

Á bakaleiðinni komum við við á Selfossi og ég sýndi Guðnýju og Elínu hvolpinn okkar hann Tinna. Hann er orðinn 5 vikna og hress og sprækur.

7. mars 2010

Krúttleg blogg

Datt aðeins í að skoða krúttlegar bloggsíður og fann eina íslenska og tvær útlenskar sem er gaman að skoða:

Hér er hún Heidi sem býr í Bergen í Noregi.

Og hér er systraseiður

og svo ein enn, Marianne frá Ålasund, er það ekki í Danmörku?

Það er svo gaman að skoða svona síður, það er róandi og kemur manni í gott skap að kíkja á fallega hluti og krúttlegar myndir.
Related Posts with Thumbnails