27. janúar 2011

Sígur á seinni hlutann

Nú eru allir rammarnir orðnir hvítir, þeir síðustu voru málaðir í vikunni. Næsta skref er að finna til myndir í uþ.þ.b. helming rammanna, sumar myndir nota ég áfram frá gamla veggnum en svo ætla ég að setja nýjar líka.
Nóg af römmum, hlakka til að fara að raða þeim á vegginn.
Ég ætlaði nú ekkert að sýna meira fyrr en þetta væri tilbúið en svo fór ég að skoða gömul blogg og sá að síðasta færslan sl. 3 ár í janúar var þann 27. þannig að ég gat ekki annað en sett smá færslu núna.

16. janúar 2011

hálfnað verk þá hafið er

Myndaveggurinn áður en hafist var handa við "project restyle". Planið var að búa til ferhyrning í grágrænum lit undir myndirnar, setja hillu yfir ofninn, mála alla rammana hvíta og leynitrikkið ....
Búin að taka alla rammana og þá kom í ljós hvað veggurinn var illa farinn. Það hefur ekki verið málað þarna í 7-8 ár og það kemur mikið ryk út af ofninum en hann er alltaf sjóðheitur enda eini ofninn í holinu.
Búið að taka allar myndirnar úr römmunum, hmmm látið bara eins og þið sjáið ekki rykið.
Að spartla og þrífa vegginn undir málningu.
Byrjuð að mála, nota yfirleitt bara litlu rúlluna í svona smáverk.
Nota alltaf þetta snilldarráð þegar ég mála, þ.e. set málningarbakkann inn í plastpoka, þá þarf ekkert að þvo bakkann á eftir, bara að henda pokanum.
Jæja, það er að komast mynd á þetta smátt og smátt, hillunni stillt upp með bókum til sjá hvernig þetta kemur út. Næsta skref að mála hilluna og síðan rammana.
Málaði hilluna með kalkmálningunni góðu sem ég keypti í fyrrasumar, hún gefur svona gamaldags veðrað útlit.
Hr. Galinn setti hilluna upp í kvöld og ég byrjaði að mála rammana, búin að fara eina umferð á fimm ramma, slatti eftir, þetta gæti tekið tíma.

9. janúar 2011

To do or not to do

Fyrsta handavinnuverkefni ársins er lokið. Á jólafundi prjónakaffi hópsins míns var pakkaleikur og ég fékk dokku af dásamlegu garni frá www.rasmilla.dk sem er 70% ull og 30% silki. Ég ákvað að gera þessar grifflur eftir Helgu Isager sem ég sá á námskeiði hjá Nálinni sl. sumar. Ég byrjaði á þeim 1. janúar og lauk þeim 8. janúar. Svo er spurning hvað verður næst á prjónunum hjá frúnni. Þarf samt að klára ullarsokkan sem ég byrjaði á fyrir jól úr kambgarni sem ég keypti þegar ég var í Kennó hér um árið. Ég býst við að næsta verkefni verði peysa eftir Helgu Isager sem við Guðný ætlum að prjóna saman, gaman gaman, held samt að Guðný þurfi að vera með mörg verkefni í gangi í einu svo hún klári sína ekki löngu á undan mér.

Þessi fjölskyldumyndaveggur hefur verið svona sl. 8 ár og nú langar mig að poppa hann aðeins upp. Mála hluta af honum, setja hillu yfir ofninn, mála rammana hvíta og raða öðru vísi upp. Það þarf líka að endurnýja einhverjar myndir og bæta við römmum. Þetta verður svona project restyle verkefni eins og tengillinn efst til hægri vísar á. Mér finnst einmitt svo gaman þessa dagana að skoða svona remodeling verkefni á blogsíðum.
Mig langar líka að mála þetta borð hvítt og setja hjólin aftur undir það sem voru þannig að það verði lægra, held að það smellpassi sem hornborð á milli stofusófanna. Þá vantar mig reyndar eitthvað á þennan vegg en mér hlýtur að detta eitthvað í hug

Þetta verða tvö fyrstu to do verkefni ársins en ég ætla að reyna að vera dugleg í svona minniháttar endurbótum hér innanhúss þetta árið (áramótaheit???)
Related Posts with Thumbnails