Ólöf fór með mér á prjónakaffi á laugardagsmorguninn. Hún bað mig að prjóna á sig vettlinga. Ég spurði auðvitað hvernig vettlinga viltu? Hún lýsti þeim í smáatriðum og valdi sér garn og ég prjónaði svo vettlingana um helgina. Ég hafði nú vit á því að taka mynd af þeim áður en hún fór með þá í skólann sem var eins gott, því í dag, þremur dögum seinna, týndist annar vettlingurinn!25. mars 2009
Vettlingahönnuðurinn Ólöf
Ólöf fór með mér á prjónakaffi á laugardagsmorguninn. Hún bað mig að prjóna á sig vettlinga. Ég spurði auðvitað hvernig vettlinga viltu? Hún lýsti þeim í smáatriðum og valdi sér garn og ég prjónaði svo vettlingana um helgina. Ég hafði nú vit á því að taka mynd af þeim áður en hún fór með þá í skólann sem var eins gott, því í dag, þremur dögum seinna, týndist annar vettlingurinn!
Merkimiðar:
Handavinna
15. mars 2009
Kostir kreppunnar
- Örfá tilfelli af lús í vetur í skólanum vegna færri utanlandsferða
- Siðferði almenning og ráðamanna batnar vonandi
- Ungt fólk þarf að standa sig í vinnu vegna atvinnuleysis, vonandi smitar það inn í unglingadeildir grunnskóla og fólk fer að sinna náminu betur.
Þarf aðeins að hugsa málið, örugglega fleiri atriði, eða hvað?
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)