Nú er ég farin að bíða eftir því að fá rólega helgi, því þær helgar sem eru komnar frá því að ég byrjaði aftur að vinna hafa verið frekar pakkaðar. Síðasta helgi var t.d. mjög strembin, þá héldum við bekkjarafmæli fyrir sætu spætuna á fimmtudegi, fórum í 4 ára afmæli bróðurdóttur minnar á föstudaginn, fórum í 2 ára afmæli ömmustráksins á laugardeginum, svo héldum við fjölskylduafmæli fyrir spætuna á sunnudeginum. Allt mjög skemmtilegt en svolítið erfitt þegar það er svona mikið að gera.