
how do you make a gif at gickr.com
Ég kom heim úr húsmæðraorlofinu mínu til Ítalíu aðfararnótt þriðjudags. Ferðin var einu orði sagt dásamleg. Staðurinn sem við gistum flestar nætur á, lítið 300 manna fjallaþorp, Corfino, var eins og klipptur út úr póstkorti. Litlar götur, falleg hús, blóm alls staðar, yndislegt fólk. Hópurinn sem fór í þessa ferð var einstaklega vel samsettur og skemmtilegur en eins og allir vita er það ekki sjálfgefið.
Þvottasnúrurnar voru almennt utan á húsunum og þar var engin feimni, stórar ömmunærur héngu við hliðina á handklæðum og borðdúkum.

Þetta er aðalfjallið, Pania di Corfino. Þorpið er í 840 m hæð yfir sjávarmáli og fjallið er annað eins. Við fórum ekki upp á efsta toppinn heldur í gegnum skarðið sem örin bendir á. Þetta var 10 km leið sem tók okkur um 5 klst með klukkutíma stoppi á barnum þarna upp (sem var því miður ekki opinn), hækkunin var um 600 m.
Í lok ferðarinnar tókum við E lest til Pisa og kíktum á skakka turninn. Það var stórkostleg upplifun. Turninn var stærri, marmarinn hvítari og hallinn meiri en ég hafði gert mér í hugarlund. Þá hefur enn eitt atriði bæst á listann hjá mér yfir merkilega staði í útlöndum sem ég hef séð með eigin augum.
- San Marino smáríkið á Ítalíu, 1987.
- Feneyjar, Ítalíu, 1987 og 2000.
- Akropolis hæð í Aþenu, Grikklandi, 1990.
- Uffici safnið í Flórens, Ítalíu, 2000.
- Stonehenge, Bretlandi, 2003.
- Skakki turninn í Pisa, Ítalíu, 2012
Ferðin var sem sagt mögnuð upplifun og kemst engan veginn fyrir í þessum pósti. Hversdagsleikinn skall hins vegar harkalega á þegar heim kom, þrif, eldamennska, þvottur og annað slíkt sem tilheyrir heimilishaldi. En ég get yljað mér við minningar um hrikalega skemmtilega ferð.





