Kaka ársins stóð alveg undir merkjum, ljúffeng og góð.
Ég hef verið að sortera og henda dóti úr vinnuherberginu, (úff það sem ég safna af dóti). Skipulagningin er langt komin en enn eru nokkrir kassar í skúrnum sem þarf að fara yfir. Herbergið er orðið bara nokkuð notalegt.
Blúndur og borðar! Hvenær á maður nóg af silkiborðum?
Krukkurnar undan feta ostinum frá Bónus raðast skemmtilega í litlu hilluna. Ég er loksins búin að finna ráð til að ná límógeðinu af þessum fallegu krukkum. Ég legg þær í bleyti með uppþvottavélatöflu yfir nótt, nota svo hníf til að skafa miðana af og set þær svo í uppþvottavélina eina eða tvær umferðir. Ef eitthvað klístur er eftir þegar þessi meðferð er búin næ ég í pottasvampin og tek restina. Hver ætlar að taka að sér að hringja í hr. Bónus og biðja hann að nota lím sem fer af með minni fyrirhöfn?Á prjónunum er lítill músarangi að fæðast og svo er ungbarnahúfa með uglu í mótun. Sýni það fljótlega.





