Ég er alveg dottin í að skoða krúttlegar bloggsíður. Búin að finna nokkrar frá Svíþjóð sem eru ótrúlega sætar, þær eru í þessum hvíta norðurlandastíl sem mér finnst svo flottur. Svo eru líka síður um alls kyns DIY stöff og nú langar mig að mála ruggustólinn, flísaleggja í eldhúsinu, mála þvottahúsið o.s.frv.
Hverdags lykke
Nýr kjóll á hverjum degi
Ráð til að einfalda líf sitt
innréttingar í hvítu og góðar uppskriftir (búin að prófa muffins með crumble - ógó góðar)
óskalistinn - skemmtilegt íslenskt blogg
Hvítir draumar Júlíu
Alls konar krúttlegt heimagert smádót
Svo er það auðvitað Systraseiður og Obbosí og Hugmyndasvampurinn
Maður getur alveg gleymt sér og svo eru auðvitað fullt af flottum síðum sem hægt er að skoða út frá þessum.
Og svo yfir í hundamálin. Nú er Tinni búinn að vera hjá okkur í viku, hann er farinn að læra inn á okkur og við inn á hann. Hann er voða hress og skemmtilegur en svo er ekki eins skemmtilegt að þrífa upp piss og kúk eftir hann, en það tilheyrir víst. Ef við erum vel vakandi yfir því hvernig hann lætur gengur þetta fínt.
25. apríl 2010
18. apríl 2010
Hundahaldið
Dagur tvö í hundahaldi er að kveldi kominn. Hlutföllin eru orðin hagstæðari varðandi nr.1 og nr. 2. Aðeins tvö slys inni í dag, á meðan hann pissaði aðeins 2 úti í gær. Mikið voðalega pissa hundar annars oft, alveg á 1-2 tíma fresti!
17. apríl 2010
Tinni kominn til okkar
Við fórum í gær og náðum í litla töffarann. Hann var voða góður í bílnum á leiðinni og mjög fljótur að átta sig þegar hann kom hingað heim. Fyrsta nóttin gekk ágætlega, hann vaknaði bara einu sinni. Hann er búinn að vera duglegur að borða og drekka, en við erum ekki alveg að ná saman í pisseríinu, en það kemur örugglega fljótlega.
Maður getur nú orðið þreyttur þegar maður þarf að vakna kl. 6!
Maður getur nú orðið þreyttur þegar maður þarf að vakna kl. 6!
kl.
16:27
Engin ummæli:
15. apríl 2010
Mmmmm
Um síðustu helgi fórum við 4 ásamt mági mínum og hans fjölskyldu í bústað KÍ á Flúðum. Þar er nú alltaf indælt að vera en í þetta skiptið var rok og rigning alla helgina. Það kom samt ekki í veg fyrir að við nytum lífsins. Góð helgi.
Á morgun megum við sækja hundinn okkar, hann Tinna. Það er mikill spenningur hér og helgin verður örugglega alveg bráðskemmtileg. Ég er samt svolítið stressuð yfir þessu öllu, enda hef ég aldrei átt hund áður. Ég er samt viss um að þetta reddast, ég hef alla vega nóg af fólki til að hringja í og leyta ráða hjá.
Merkimiðar:
Bakstur,
Fjölskyldan,
Hundahald,
Ljósmyndun
11. apríl 2010
Alltaf sama fiktið í mér
Ég var að fikta í útliti síðunnar og nú er hún öll í f%&$i. Árans vandræði, vona að þetta lagist af sjálfu sér því ég er búin að prófa allt til að laga þetta og ekkert gerist ... arrrrgggg
Mér hefði verið nær að nota kvöldið til að prjóna.
Mér hefði verið nær að nota kvöldið til að prjóna.
7. apríl 2010
Páskar
Við Ólöf fórum í göngutúr í Indjánaskógi á páskadag í yndislegu veðri, vildi að við hefðum haft Tinna með okkur. Þetta er kraginn sem við prjónuðum saman í páskafríinu, passar bæði á hana og mig.
Ég ætla að nota myndina hér fyrir neðan fyrir viku 14 í MÁV verkefninu hjá Fókusfélaginu.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Handavinna,
Hreyfing,
Ljósmyndun
2. apríl 2010
Föstudagurinn langi
Litla fjölskyldan frá Hveragerði kom til okkar í dag. Ég tók 6 mánaða myndir af litla gaur, þau borðuðu með okkur og stelpurnar léku sér saman. Indæll dagur og engin pína hér í anda kristinnar trúar.
To do listinn minn fyrir páskafríið er næstum búinn, júhú:
To do listinn minn fyrir páskafríið er næstum búinn, júhú:
-
Reikna laun og lífeyrissjóð gera matseðil fyrir páskahátíðina- halda áfram með verkefni fyrir BHS
Vinna 5 mánaða myndir fyrir SöndruTaka 6 mánaða myndir fyrir SöndruTaka mynd fyrir viku 13 í MÁV verkefninuTaka mynd fyrir viku 14heimsækja Tinnaþrífa rúður að utan- þrífa rúður að innan
- byrja á garðverkunum
- fá mold í garðinn
skila borði til Sigrúnarkaupa grind fyrir hundinn- rölta á Laugaveginum
þrífa bakka f. hnífapör og tannburstaþrífa niðurföllin á baðinufókusfundur og skila mynd til Þórdísarþvo veggi, blettahreinsun- athuga með sumarvinnu f. ÞM
kaupa páskaeggsetja Íslandskort á Garmin fyrir Ninnu- klára lopapeysu fyrir ÞM
- klára matreiðslubók f. 10-A
þrífa ÓH herbergisetja efni á flakkara Önnuprjóna kraga f. ÓHsetja efni á flakkara f Sigrúnu
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Heimilið,
Ljósmyndun
1. apríl 2010
Páskafrí með öllum sínum dásemdum
Mikið er nú yndislegt að vera í páskafríi. Dagarnir orðnir langir, sólin skín þó úti sé fimbulkuldi. Við mæðgur dúllum okkur hér heima við föndur, tiltekt, skipulagningu vegna komu Tinna o.s.frv.
Við systur fórum ásamt tveimur af dætrum okkar í garnbúðina Gallerí Garn í Mosó. Þar er mikið úrval af allskonar eðalgarni. Ólöf bað um þetta garn í kraga og ég gat ekki annað en látið það eftir henni. Þetta er 85% merino ull og 15% polyamide og er mjúkt og yndislegt.
Ólöf notaði tækifærið og lærði að gera brugnu lykkjuna og var mjög dugleg að prjóna kragann.

Einbeitingin skín úr svipnum.
GM kom yfir til okkar og við föndruðum páskakanínur. Uppskriftin er frá The Pearl Bee, sjá link hægra megin.
Við fórum í gær og keyptum hundagrind því Tinni kemur til okkar eftir tvær vikur og þá verður allt að vera tilbúið. Hundagrindin var mest spennandi staðurinn í húsinu í dag.
To do listinn minn fyrir páskafríið og restina af apríl nær yfir rúmlega eina blaðsíðu í dagbókinni minni en það saxast samt smátt og smátt á hann. Ég passa alltaf að hafa lítil og einföld verk á listanum inn á milli þá get ég fljótlega byrjað að strika út af honum.
kl.
00:33
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Handavinna,
Hundahald,
Krúttlegt,
Ljósmyndun
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)











