15. apríl 2010

Mmmmm

















Um síðustu helgi fórum við 4 ásamt mági mínum og hans fjölskyldu í bústað KÍ á Flúðum. Þar er nú alltaf indælt að vera en í þetta skiptið var rok og rigning alla helgina. Það kom samt ekki í veg fyrir að við nytum lífsins. Góð helgi.

Á morgun megum við sækja hundinn okkar, hann Tinna. Það er mikill spenningur hér og helgin verður örugglega alveg bráðskemmtileg. Ég er samt svolítið stressuð yfir þessu öllu, enda hef ég aldrei átt hund áður. Ég er samt viss um að þetta reddast, ég hef alla vega nóg af fólki til að hringja í og leyta ráða hjá.

1 ummæli:

e sagði...

Þvílík spenna - svoooo gaman - þetta verður ekkert mál :)
Til hamingju með að fá Tinna heim :)

Related Posts with Thumbnails