Ég sá mynd af svona ótrúlega krúttlegri húfu á Pinterest um daginn og ákvað að prófa. Það var engin uppskrift, og ég ákvað að nota bara afganga, svo ég reiknaði út prjónafestu, fann á Pinterest stærðartöflu yfir höfuðmál og út kom þessi krúttlega ugluhúfa sem passar sennilega á 0-2 mán.
Í stíl við húfuna gerði ég svo þessar hosur. Ef vel er að gáð sést að á þeim eru líka uglur. Ég fann uppskrift sem ég byggði á á Ravelry en þar átti að byrja á stroffinu. Ég þurfti hins vegar að byrja á ilinni til þess að geta prjónað uglurnar í "rétta" átt.
Ég er í nokkrum handavinnugrúppum á facebook og í einni þeirra setti einhver fram mynd og sagðist hafa pantað dásamlega mjúkt og yndislegt garn frá Kína, hún gaf upp slóð á söluaðilann og þar sem ég er svolítið smeyk við að panta garn sem ég hef ekki komið við ákvað ég að prófa þetta garn. Það tók 3 vikur fyrir garnið að komast til Íslands frá Kína og það var engin lýgi að garnið er undur mjúkt enda segir seljandinn að það sé 85% silki og 15% bambus. Með fylgdu 4 stk af bandprjónum nr 2.
Ég fitjaði upp á silkihúfu og hélt nú að ég yrði heila eilífð að komast eitthvað áfram með svona fíngert garn en þetta skotgengur.




