19. júní 2011

Að prenta á efni

Ég er búin að vera með efnisprentun á heilanum undanfarnar vikur. Um daginn sá ég aðferð á pinterest.com sem ég ákvað að prófa en hún felst í því að prenta mynd með laser prentara á venjulegt A4 blað, hvolfa myndinni á efni (athugið að prenta spegilmynd) og nota málningarþynni (paint thinner) til að leysa upp litinn og nudda honum á efnið. Ég nennti ekki að leita að málningarþynni þannig að ég náði í acetonið og hugsaði með mér að málningarþynnir og naglalakkseyðir hljóti að vera nokkurn veginn sami hluturinn og það kom á daginn, þetta svínvirkar, maður þarf samt að nudda mjög fast ofan á blaðið og bleyta nokkrum sinnum með þynninum því hann er svo fljótur að gufa upp (og muna að hafa góða loftræstingu svo maður verði ekki ruglaður í kollinum). Þegar ég var búin að gera nokkrar prufur tók ég fram viskustykkin úr Söstrene Grene sem ég keypti um daginn og setti myndina og textann sem ég var búin að búa til í tölvunni á efnið.
Best er að líma efnið niður á borð og líma svo pappírinn niður á efnið. Það er nefnilega hægt að gera ótrúlega fínlega merkingu með þessari aðferð. Ég bætti svo smá útsaumi við, hjarta utan um heimilisfangið og æ-ið varð rautt. Ég geri ráð fyrir að þetta virki líka með litaprentun, en á pinterest var talað um að prentarinn yrði að vera laser því bleksprautuprentarar myndu láta myndina renna of mikið út.
En þetta er ekki eina aðferðin því ég prófaði líka að strauja Freezer paper á léreft og snyrta brúnirnar. Síðan er pappírinn/efnið sett í gegnum bleksprautuprentara sem prentar það sem maður vill á efnið. Þegar þetta er komið í gegnum prentarann er pappírinn rifinn í burtu og maður er með efni með prentuninni á.

Allt þetta varð til vegna þess að ég skoða pinterest.

17. júní 2011

Til hamingju með daginn kæru Íslendingar

Í dag fórum við á Árbæjarsafnið og röltum þar í stafalogni og blíðskaparveðri þó engin sól hafi sýnt sig. Við gengum á milli húsa og leystum ratleik sem safnið bauð upp á, fengum okkur kaffi í Dillonshúsi og nutum umhverfisins. Stelpurnar heilluðust af hænunum og gáfu þeim gras að borða. Heimasætan pantaði þessa ferð þar sem hún fékk vinnu á safninu við að búa til blómabeð og stíga.
Ég er búin að taka þátt í þessu ljósmyndaverkefni nú í júní en þá á maður að skila inn myndum á Flickr á hverjum degi í júní og verkefni dagsins í dag var technology eða tækni. Ég ákvað að nota ferðina og mynda gömlu tæknina á safninu.
Related Posts with Thumbnails