11. ágúst 2010

Tinni 6 mánaða

Tinni varð 6 mánaða sl. sunnudag og af því tilefni fórum við Þórunn með hann út á tún í gær og tókum myndir af honum. Hann er nú að verða ágætisfyrirsæta og er duglegur að horfa í myndavélina.

Nú fer alvara lífsins að bresta á, ég fer á morgun á námskeið í stærðfræðikennslu og svo byrjar vinnan fyrir alvöru eftir helgi. Mér finnst ég nýbyrjuð í sumarfríi en er samt þakklát fyrir mitt langa frí því sumir fá ekkert sumarfrí eða mun styttra en ég.

7. ágúst 2010

Það er svo leiðinlegt að sitja í bíl

Þokan á Holtavörðuheiði er alltaf söm við sig. Við fengum svartaþoku á leiðinni á Þórshöfn og svo aftur hálfum mánuði seinna á leiðinni á Ólafsfjörð. En svo undarlega vildi til að á leiðinni heim var ekki þoka!

Annars er ég eiginlega komin með ógeð á því að sitja í bíl, bílstjóri eða farþegi, skiptir ekki máli. Ég stillti trip mælinn í bílnum í fyrri ferðinni og keyrði 1580 km samtals, í seinni ferðinni var S alltaf að núllstilla tripmælinn þannig að ég tók bara saman vegalengdir á milli þeirra staða sem við fórum á en þá voru auðvitað ekki taldir þeir km sem keyrðir voru inni á hverjum stað. Í seinni ferðinni keyrðum við 1528 km + eitthvað smá í viðbót fyrir innanbæjarakstur. Þetta er því jafnmikil keyrsla á báða staði, báðar ferðir voru frá mið til mánudags.

Ég fór á gay pride gleðigönguna í dag í fyrsta skipti, ég er búin að ætla að fara í mörg ár en nú ákvað ég að drífa mig, sérstaklega þar sem Fókus ljósmyndaklúbburinn minn hittist þar til að taka myndir. Þessi ganga er algjört augnakonfekt fyrir ljósmyndara, litirnir og gleðin sem skín af hverjum manni er alveg óborganleg. Ég ætla að vinna nokkrar myndir (ég tók tæplega 500 myndir) og setja inn á Flickr á morgun.

Ó já og Tinni er 6 mánaða í dag, litla krúttið, verð að taka myndir af honum á morgun.

2. ágúst 2010

strákastand á frúnni

Við vorum á Óló um helgina sem er ekki í frásögur færandi nema ég upplifði sól og sumaryl þar nyrðra í fyrsta skiptið síðan við fórum að venja komur okkar þangað. Hef að vísu lent í ágætisveðri nokkrum sinnum en laugardagurinn var alveg toppur.

Auðviðtað fórum við nokkrum sinnum inn á Akureyri eins og lög gera ráð fyrir og á sunnudeginum kolféll ég fyrir strák! Við vorum sumsé að ganga í miðbæ Ak eins og fjöldinn allur af fólki þegar hundkvikindið gengur fyrir lappirnar á mér þannig að ég steig á tærnar á honum, hann æpti auðvitað af sársauka (ég er engin léttavara) og mér brá svo að ég reyndi að stíga yfir hann svo ég slasaði greyið ekki meira en tókst ekki betur upp en svo að ég rak tærnar í hann og hrundi í götuna og meiddi mig á hnénu :-(

Sveitamarkaðurinn við jólahúsið er algjör skylduheimsókn ef maður er staddur á þessum slóðum á sunnudögum. Krúttlegri markaður finnst ekki norðan alpafjalla.
Related Posts with Thumbnails