Sýnir færslur með efnisorðinu prjón. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu prjón. Sýna allar færslur

23. júní 2015

Sumar á sunnudögum

Ætli sumarið verði svona, bara sumar á sunnudögum eins og tvo síðastliðna sunnudaga? Þá er um að gera að njóta á meðan er, kasta öllu frá sér og nota blíðuna. Ég byrjaði sunnudagsmorguninn á því að hjóla í sund og svo naut ég veðurblíðunnar á svölunum það sem eftir var dags.
Prjónaði svolítið ...
Fékk mér hádegismat ...
 Naut blómanna sem ég er búin að planta ...
 Prjónaði svolítið meira ...
 Blandaði bleikan sumardrykk ...
Það þarf ekki að vera flókið að njóta lífsins, einfaldleikinn er stundum bestur. Ég vona að við fáum aðeins meira en bara sunnudaga með veðurblíðu í sumar, en ef svo fer ekki þá er bara að klæða sig og haga seglum eftir vindi.

2. apríl 2015

Prjónapáskar

Þetta árið eru fjórar fermingar á dagskrá hjá mér, þrjár eru afgreiddar og sú síðasta, hjá elstu ömmustúlkunni minni verður haldin eftir páska. Framundan er því afslöppun með prjónana, gönguferðir og sundferðir en einnig að pakka í kassa, henda og gefa það sem við viljum ekki flytja með okkur.
Ég prjónaði þessa kertalogahúfu fyrir nokkrum vikum og í síðustu viku fékk ég sendan stóran, fallegan þvottabjarnardúsk frá Kína sem fer sérlega vel á húfunni.
Ég byrjaði líka á þessum sokkum fyrir nokkru síðan, er búin með annan (nema hælinn) og komin að hæl á hinum, þetta er bara leti að vera ekki búin að klára sokkana, en ég reyni að telja mér trú um að ég hafi verið upptekin í öðru.

30. mars 2014

Vorið nálgast

Sl. miðvikudag (26. mars) setti ég nokkra páskaliljulauka í krukkur eins og ég hafði séð á Pinterest fyrr í vetur. Ég keypti laukana í janúar og stakk þeim í ísskápinn því það stóð í leiðbeiningunum. Nú bíð ég spennt að sjá hvað gerist.
Þetta smábrum var komið af stað í ísskápnum og ég sá engan mun tveimur dögum seinna. Vonandi hefur eitthvað gerst um helgina en krukkurnar eru í kennslustofunni minni.
Silkihúfan úr kínagarninu er tilbúin og liggur til þerris. 



17. mars 2014

Prjón

Ég sá mynd af svona ótrúlega krúttlegri húfu á Pinterest um daginn og ákvað að prófa. Það var engin uppskrift, og ég ákvað að nota bara afganga, svo ég reiknaði út prjónafestu, fann á Pinterest stærðartöflu yfir höfuðmál og út kom þessi krúttlega ugluhúfa sem passar sennilega á 0-2 mán.
Í stíl við húfuna gerði ég svo þessar hosur. Ef vel er að gáð sést að á þeim eru líka uglur. Ég fann uppskrift sem ég byggði á á Ravelry en þar átti að byrja á stroffinu. Ég þurfti hins vegar að byrja á ilinni til þess að geta prjónað uglurnar í "rétta" átt.
Ég er í nokkrum handavinnugrúppum á facebook og í einni þeirra setti einhver fram mynd og sagðist hafa pantað dásamlega mjúkt og yndislegt garn frá Kína, hún gaf upp slóð á söluaðilann og þar sem ég er svolítið smeyk við að panta garn sem ég hef ekki komið við ákvað ég að prófa þetta garn. Það tók 3 vikur fyrir garnið að komast til Íslands frá Kína og það var engin lýgi að garnið er undur mjúkt enda segir seljandinn að það sé 85% silki og 15% bambus. Með fylgdu 4 stk af bandprjónum nr 2.
Ég fitjaði upp á silkihúfu og hélt nú að ég yrði heila eilífð að komast eitthvað áfram með svona fíngert garn en þetta skotgengur.
Nú er ég búin með eyrun með böndum og búin að tengja í hring.




23. febrúar 2014

Skipulag

 Í tilefni konudagsins keypti ég blóm fyrir stofuborðið og köku ársins fyrir afkvæmin og nokkra gesti. Blómin eru dásamlega falleg sérstaklega í dag þegar vetrarsólin skein inn um skítuga gluggana og var með fögur fyrirheit. Mikið hlakka ég til að það hlýni aðeins, þá verður sko rokið út með gluggasápuvatnið.
Kaka ársins stóð alveg undir merkjum, ljúffeng og góð.
 Ég hef verið að sortera og henda dóti úr vinnuherberginu, (úff það sem ég safna af dóti). Skipulagningin er langt komin en enn eru nokkrir kassar í skúrnum sem þarf að fara yfir. Herbergið er orðið bara nokkuð notalegt.
Blúndur og borðar! Hvenær á maður nóg af silkiborðum?
Krukkurnar undan feta ostinum frá Bónus raðast skemmtilega í litlu hilluna. Ég er loksins búin að finna ráð til að ná límógeðinu af þessum fallegu krukkum. Ég legg þær í bleyti með uppþvottavélatöflu yfir nótt, nota svo hníf til að skafa miðana af og set þær svo í uppþvottavélina eina eða tvær umferðir. Ef eitthvað klístur er eftir þegar þessi meðferð er búin næ ég í pottasvampin og tek restina. Hver ætlar að taka að sér að hringja í hr. Bónus og biðja hann að nota lím sem fer af með minni fyrirhöfn?
Á prjónunum er lítill músarangi að fæðast og svo er ungbarnahúfa með uglu í mótun. Sýni það fljótlega.

29. desember 2013

fimmti

Þá er aðventan frá og öll jólaboðin líka. Eftir eru nokkrir frídagar fyrir prjónaskap og rólegheit. Búin að skipta því sem þurfti að skipta, sem var nú reyndar ekki mikið. Hér komu 3 diskar af "Mamma þarf að djamma" upp úr pökkunum og jólaórói Georg Jensen sem við erum ekki að safna. Þessu var því skipt í annað notadrýgra.
Sjalið á myndinni er ég að prjóna í annað sinn en fyrri útgáfuna rakti ég upp því uppskriftin passaði ekki alveg við garnið sem ég nota.

1. desember 2013

fyrsti

Fyrsti sunnudagur í aðventu hefur farið í laufabrauðsgerð og piparkökumálun með fjölskyldunni minni. Ég gerði smá laufabrauðsvideo í dag og er búin að klippa það og það er að hlaðast inn á Vimeo, as we speak.
Við erum byrjuð að undirbúa jólin. Það er búið að kveikja á seríunni utan á húsinu, setja upp einfaldan aðventukrans, ná í jólaskrautið og komast í jólagírinn. Við þurfum að gera allt voða fínt því heimasætan ætlar að skarta stúdentshúfu fyrir jólin, dugnaðarforkurinn sem hún er.
Ég er nú komin aðeins lengra með sængurgjöfina fyrir litlu bróðurdóttur mína en vil ekki sýna meira eins og er. Þarf samt að fara að drífa mig að klára því það er von á barninu innan tveggja vikna.

11. nóvember 2013

hausthandavinna

 Litla Óskastjarna í knúsutíma hjá ömmu sinni.

 Úr þessu garni verður peysa á mig, ég þarf samt fyrst að klára þessi þrjú verkefni sem eru á prjónunum nú þegar.
Er að prjóna úr þessu garni núna.

22. september 2013

myndir

 Vaskur hópur kennara og maka að leggja í hann.



 Við mættum þessu prjónanámskeiði fljótlega eftir að ferðin hófst.






Mesta afrek sumarsins var klárlega ganga yfir Fimmvörðuháls um miðjan ágúst. Ferðin var skipulögð af  Kennarafélagi Reykjavíkur og það voru 36 galvaskir kennarar og makar sem gengu í 11 tíma yfir hálsinn, 26 km leið. Ferðin var erfið en gefandi á margan hátt, mér fannst frábært að ég skildi komast þetta en ég hafði ekki verið neitt sérstaklega dugleg að æfa mig áður en ég fór í ferðina. Veðrið sem við fengum var allskonar, sól, hiti, rigning, kuldi og slydda en logn allan tímann. Ég var sérstaklega ánægð með að fá ekki eina einustu blöðru eftir alla þessa gönguDaginn eftir leið mér skringilega, ég var auðvitað dösuð eftir alla áreynsluna en tilfinningin var eiginlega eins og ég væri timbruð.



Nokkrum dögum seinna fór ég ásamt vinkonu minni út í Viðey að tína kúmen. Við tókum bátinn snemma eða kl. 17:15, tíndum í klukkutíma og tókum bátinn til baka um 18:30. Þegar heim var komið tók við nokkur vinna að þurrka kúmenið og tína það af stönglunum. Sæta spætan og vinkona hennar sáu um mesta puðið við eftirvinnuna. Úr þessu kúmeni er búið að hella upp á kaffi og baka brauð. Næst langar mig að prófa að gera kúmenpönnukökur.
Við erum nú búin að vera nokkuð dugleg í höndunum í sumar en sæta spætan heklaði þennan stóra og glæsilega púða úr afgöngunum mínum og fékk svo að setja bak í hann hjá bestu frænku, handavinnukennaranum sínum.

 Herra Galinn smíðaði þetta krúttlega rúm fyrir nýjasta afabarnið sitt.
 Sæta spætan prjónaði húfur eins og enginn væri morgundagurinn í textílmennt í skólanum. Hún náði að gera tvær húfur á meðan margir af bekkjarfélögum hennar náðu ekki einu sinni að gera eina. Þetta er fyrri húfan sem hún gaf frænku sinni í afmælisgjöf, seinni húfuna gaf hún svo stóru systur sinni.

 Ég hélt áfram með dagatalssjalið en það er úr lítilli bók frá Isager sem er líka dagatal fyrir árið 2013.

 Góð nýting á afgangsgarni.
Þarna sést sæta spætan og púðinn góði.
Árlega heldur fjölskylda herra Galins golfmót. Eftir golfmótið sem er púttmót er haldin grillveisla og þetta árið var veislan heima hjá okkur. Sæta spætan hefur sjaldan viljað taka þátt en þetta árið gerði hún það og lenti í fyrsta sæti og fékk farandbikar að launum.

Heimasætan tók þátt í busun í framhaldsskólanum sínum og var hópstjóri sem stjórnaði aðgerðum við að busa nýju krakkana. Hún er alveg á síðustu metrunum í náminu, útskrifast líklega um jólin.
Merkilegust af öllu var samt litla stúlkan sem lét aðeins bíða eftir sér og gerði okkur hjónakornin að afa og ömmu í þriðja sinn. Dásamlega falleg og vel gerð og ég hlakka til að kynnast henni.

Stoltir foreldrar á leiðinni heim af fæðingardeildinni.
Peysan sem ég prjónaði, ásamt húfu og vettlingum.


Stóra systir passar hana vel.
Related Posts with Thumbnails