30. október 2010

Haustmyndataka af stelpunum

Við löbbuðum út að Korpu einn fagran haustdag nú í október til að taka myndir af börnunum. Stelpurnar voru voða stilltar að stilla sér upp og Tinni var forvitinn fyrst ...
... en svo varð hann órólegur og nennti ekki að vera í þessum leik lengur.
Þær systur náðu samt að hemja hann og ég náði ágætis myndum af þeim, sem verða m.a. notaðar á jólakort og dagatöl. Ég er byrjuð á dagatölunum en jólakortin verða að bíða betri tíma. Ég þarf líka að finna mér góða og ódýra prentþjónustu, ég var ekki alveg nógu ánægð með Háskólaprent sem ég notaði sl. haust, myndirnar urðu allt of dökkar og asnalegir litir hjá þeim.

9. október 2010

Heimasætan orðin 16 ára

Fyrir 16 árum fæddist þessi yndislega stúlka, 11 merkur og 50 cm, lítil en sterk og dugleg. Hún hefur alltaf haft ákveðnar skoðanir á lífinu og lætur ekki vaða ofan í sig. Hún var skírð í höfuðið á ömmu Stellu, hennar fyrsta barnabarn og þær hafa verið góðar vinkonur alla tíð, Þórunn var ekki nema 9 eða 10 mánaða þegar hún gisti fyrst hjá ömmu sinni og hún hefur gist óteljandi sinnum hjá henni og finnst það alltaf jafnskemmtilegt.
Nú er hún komin í framhaldsskóla, á fullt af góðum vinum og gengur bara allt í haginn, ennþá lítil en sterk og dugleg.
Eftir nokkra daga fer hún í fyrsta ökutímann sinn. Ég hlakka til að fara með henni í æfingaaksturinn og allt hitt sem hún á eftir að taka sér fyrir hendur í framtíðinni.
Haustið er svo fallegur tími, allir þessir litir í náttúrunni, þessi kaldi ferski andvari, alla vega þegar ekki er rok og rigning. Ég skrapp í smástund út að mynda í vikunni, fór nú ekki langt, bara niður götuna mína. Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt. Haustlitirnir eru líka fallegir við bæjardyrnar.
Þetta er nú örugglega væmnasta færsla hingað til en maður verður svolítið mjúkur þegar fyrsta barnið manns verður 16 ára. Mér finnst þessi 16 ár hafa flogið hjá.

7. október 2010

Fyrirsætan


Í dag kom í búðir nýjasta tölublað Ístex Lopi 30. Guðný á nokkrar æðislegar uppskriftir í blaðinu og hún bað Ólöfu að sitja fyrir á nokkrum myndum. Blaðið er vel heppnað en mér finnst nú uppskriftirnar hennar Guðnýjar og Bergrósar flottastar.

3. október 2010

Róleg og góð helgi

Við Ólöf vorum einar heima um helgina, Þórunn fór í Vatnaskóg og Siggi fór norður á Ólafsfjörð. Við höfðum það huggulegt á föstudagskvöldið, sátum og horfðum á sjónvarpið, borðuðum snakk og súkkulaði og Ólöf heklaði þar til hún sofnaði.
 Á laugardaginn var nóg að gera hjá okkur, fimleikaæfing, prjónakaffi, aukatími í Borgó, gengið til góðs fyrir Rauða krossinn og svo matarboð hjá Guðnýju og co, Ólöf gisti svo þar á meðan ég fór í flott afmæli til Ingu um kvöldið. Tinni var líka mjög upptekinn við að snyrta rúmið sitt.
Hann er auðvitað svo krúttlegur þessi elska að maður verður að fyrirgefa honum svona vitleysu.
Mér finnst svo frábært að nú er ég búin að finna Envirosax innkaupapokana til sölu hér á Íslandi en www.disir.is selja þessa frábæru poka. Ég keypti tvo venjulega innkaupapoka í sumar frá Danmörku og er búin að nota þá mjög mikið, þeir eru einstaklega rúmgóðir, léttir og sterkir. Um daginn keypti ég svo tvo í viðbót frá Dísum. Pakkinn kom heim og ég opnaði spennt, en varð fljótlega pirruð því aðeins einn poki var í pakkanum, ef klukkan hefði ekki verið orðin svona margt hefði ég hringt til þeirra og hundskammað konuna. Seinna um kvöldið var Ólöf eitthvað að kíkja undir sófa og þar fann hún hinn pakkann, eitt hornið nagað, og þá vissum við af hverju ég hafði ekki fundið hann. Tinni hafði sem sagt verið á undan mér að ná honum og ákveðið að skoða hann nánar. Sem betur fer át hann bara pappírinn og pokinn var alveg heill



Related Posts with Thumbnails