Ég fékk svolítinn pening í afmælisgjöf um daginn og ákvað að nota hann til að kaupa mér nýtt veski. Fyrir valinu varð þessi fallega leðurtaska frá Drangey sem ég fór og keypti í dag. Ég var með valkvíða því töskurnar eru hver annarri fallegri. Eftir æsilega kosningu á fb ákvað ég að taka þessa.
Í svartasta skammdeginu er ekkert annað til ráða en að fara eftir þessu heilræði, reyna að sjá töfrana í hversdagsleikanum, sem er einmitt efni bíómyndarinnar sem ég horfði á um daginn "about time". Yndisleg mynd um það að njóta augnabliksins á hverjum degi. Mig langar að horfa aftur á þessa mynd fljótlega.
Við sæta spæta skelltum okkur á kaffihús í dag en það finnst henni alveg æði. Þessi staður er í uppáhaldi hjá henni núna en þar á undan fannst henni mjög fullorðins að fá sér krakka-frappó á te&kaffi.
Vinkona sætu spætunnar var í heimsókn í dag og við ákváðum að prófa að gera varalit eins og hú sá á youtube. Innihaldið er einn Crayola vaxlitur og 1,5 tsk af kókosolíu. Þetta er brætt saman yfir vatnsbaði (vægur hiti) í smá stund, hellt í litla krukku og látið kólna. Liturinn kemur ekkert voða mikið í gegn þegar maður notar hann en áferðin er mjúk og góð.




