29. desember 2007

Milli hátíða


Þarna erum við á aðfangadag rétt áður en hátíðin gekk í garð, allt tilbúið. Við vorum 4 heima á aðfangadag, á jóladag var jólaboð hjá tengdó, á annan var jólaboð fyrir mína fjölskyldu heima hjá okkur.
Á fimmtudaginn vorum við bara heima og borðuðum afganga, ég fór í vinnunna, fyrst upp á verkstæði að reikna launin og síðan heim og fór að búa til próf, aðeins að flýta fyrir áður en próftörnin byrjar nú í janúar. Í gær fór ég svo í bæinn, ein. Ég fór í Kirsuberjatréð og skipti peysunni sem ég fékk frá Sigga, ég fékk æðislegt pils og spiladós í staðinn, síðan fór ég á Lækjarbrekku. Kallinn sagðist vera búinn að hringja í alla sem hann gæti hringt í vegna frakkans en ekkert hefði komið út úr því. Hann bauð mér að taka frakkann sem var skilinn eftir í staðinn. Ég þáði það, frakkinn smellpassaði, auðvitað!, og svei mér þá ef þetta er ekki miklu dýrari frakki, merkið er Matinique, er það ekki eitthvað svaka fínt? Kom svo við á leiðinni heim í Manni lifandi, fékk mér að borða og keypti hnetusteik í kvöldmatinn. Guðný og co komu svo í mat um kvöldið.
Það eru allir hér búnir að hafa það rosa fínt um jólin, enda ekki hægt að búast við öðru, góður matur, mikið af sætindum, gott fólk í kringum okkur, fallegar gjafir o.s.frv. Verst hvað spáir illa fyrir gamlárskvöld, og ég sem ætlaði að taka geggjaðar flugeldamyndir.

24. desember 2007

Gleðileg jól


Ég óska þess að gleði og friður ríki á jólunum. Ég óska þess að börn verði stillt og góð. Ég óska þess að öllum líði vel.
Ég þakka fyrir hvað ég á yndislega fjölskyldu. Ég þakka fyrir hvað ég á marga góða vini. Ég þakka fyrir hvað við höfum það gott. Ég þakka fyrir að við búum ekki í stríðshrjáðu landi.
Gleðileg jól

16. desember 2007

Kónguló, kónguló, vísaðu mér ...

Ég var að hringja í netþjónustu Vodafone núna áðan útaf dónalinkunum í gestabókinni hjá bekknum (og reyndar fjölskyldunni líka). Maðurinn í þjónustuverinu sagði að þetta væru svokölluð kóngulóarforrit sem leita á netinu að svona galopnum gestabókum eins og frontpage gestabækurnar eru og setja einhvern óþverra inn á þær. Þannig að ég ákvað að loka bara gestabókunum á meðan þetta gengur yfir, því ekki vil ég hafa einhvern óþverra fyrir börnunum.

Við fórum, öll fjölskyldan, upp í Heiðmörk í gær og söguðum okkur jólatré. Það var mjög skemmtilegt fyrir utan það að stelpurnar voru svo þreyttar að þær lögðust niður í hverju skrefi og vildu hvíla sig, og Ólöf vældi af þreytu. Enda ekki nema von því þær fóru ekki að sofa fyrr en eftir kl. 11 sú yngri og kl. 2 sú eldri, þær voru hjá frænku sinni sem heldur að hún sé voða góð við þær að leyfa þeim að vaka eins lengi og þær vilja og gefa þeirri yngri sex diska af kókópuffsi í morgunmat.

GM og JÁ gistu hjá okkur í nótt, alltaf gaman að hafa svona flotta krakka í heimsókn. Þau voru öll sofnuð um kl. 10 því ekki vilja þau missa af jólasveininum. Við vorum nefnilega í heimsókn hjá Þuru og Guðmundi því Þura átti afmæli, til kl. 9:30.

14. desember 2007

Bökunardagur

Nú er ég bara heima að baka, þökk sé þessu fína óveðri sem gengur yfir landið. Við mæðgur fórum auðvitað í skólann í morgun, en þá var verið að snúa öllum við og senda heim, þannig að skömmu seinna fórum við bara líka. Frábært að fá svona einn aukafrídag rétt fyrir jólin. Ég man ekki hvenær skóla var síðast aflýst vegna veðurs það eru svo mörg ár síðan.

Nú ætlum við því að fara að baka og skreyta piparkökur, kannski gerum við líka piparkökuhús. Ég er búin að baka engiferkökurnar mínar, uppskrift sem ég fékk á Austurborg þegar ég var að vinna það, geggjaðar kökur, kannski ég skrifi bara uppskriftina hér:
  • ENGIFERKÖKUR
  • 500 g hveiti
  • 500 g púðursykur
  • 250 g smjörlíki
  • 2 egg
  • 2 tsk lyftiduft
  • 2 tsk natron (matarsódi)
  • 2 tsk engifer
  • 2 tsk negull
  • 2 tsk kanill

Hnoðað deig. Búið til lengjur úr deginu (um 2 fingur að þykkt) og skerið í um 2 cm þykka bita. Raðið á bökunarplötur. Hafið smjörpappír undir. Bakað við 200°C í u.þ.b. 8-10 mín. Ath. uppskriftin er stór, fer á 4 plötur hjá mér.

Verði ykkur að góðu

9. desember 2007

Jólakveðja til ykkar frá okkur

Smellið á slóðina hér fyrir neðan og njótið

http://www.elfyourself.com/?id=1258925138

(Takk Sandra)

Kveðja
Jólaálfarnir í Grafarvoginum

7. desember 2007

Týndur frakki

Við fórum, öll stórfjölskyldan, á jólahlaðborð á Lækjarbrekku í kvöld. Sem var frábært, alveg þangað til við ætluðum heim. Þá kom í ljós að frakkinn hans Sigga var ekki í fatahenginu! Hann keypti frakkann í október þegar við vorum í Budapest. Rosa fínn frakki. Fúlt, fúlt, fúlt, arg.



Annars er laufabrauðið á dagskrá á morgun hjá mömmu, svo ætlum við Svala að hittast á sunnudaginn og reyna að lesa saman fyrir þetta próf sem við förum í á þriðjudaginn.



Ég byrjaði að prenta út dagatölin í dag, mig vantar ennþá myndir frá sumum til að gera dagatalið fyrir ömmu og afa. Ég ætla að klára þetta um helgina, prenta rest á mánudaginn og koma þessu í gormun á mánudag! Það hlýtur að takast.
Ég fór með stelpurnar í stúdóið sem IH er búin að útbúa í Engjaskóla í síðustu viku og tók jólamyndir af þeim. Þær tókust bara svaka vel, þó engin væru stúdíóljósin, bara flassið á vélinni notað. Ég á örugglega eftir að nota þetta oftar.
Related Posts with Thumbnails