16. desember 2007

Kónguló, kónguló, vísaðu mér ...

Ég var að hringja í netþjónustu Vodafone núna áðan útaf dónalinkunum í gestabókinni hjá bekknum (og reyndar fjölskyldunni líka). Maðurinn í þjónustuverinu sagði að þetta væru svokölluð kóngulóarforrit sem leita á netinu að svona galopnum gestabókum eins og frontpage gestabækurnar eru og setja einhvern óþverra inn á þær. Þannig að ég ákvað að loka bara gestabókunum á meðan þetta gengur yfir, því ekki vil ég hafa einhvern óþverra fyrir börnunum.

Við fórum, öll fjölskyldan, upp í Heiðmörk í gær og söguðum okkur jólatré. Það var mjög skemmtilegt fyrir utan það að stelpurnar voru svo þreyttar að þær lögðust niður í hverju skrefi og vildu hvíla sig, og Ólöf vældi af þreytu. Enda ekki nema von því þær fóru ekki að sofa fyrr en eftir kl. 11 sú yngri og kl. 2 sú eldri, þær voru hjá frænku sinni sem heldur að hún sé voða góð við þær að leyfa þeim að vaka eins lengi og þær vilja og gefa þeirri yngri sex diska af kókópuffsi í morgunmat.

GM og JÁ gistu hjá okkur í nótt, alltaf gaman að hafa svona flotta krakka í heimsókn. Þau voru öll sofnuð um kl. 10 því ekki vilja þau missa af jólasveininum. Við vorum nefnilega í heimsókn hjá Þuru og Guðmundi því Þura átti afmæli, til kl. 9:30.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kannast við þetta vaka lengi syndrom - við eigum nefnilega ömmur og afa sem nota svolítið þetta með að vaka lengi....virkar bara alls ekki daginn eftir!!!

Nafnlaus sagði...

Nei einmitt, voða gaman um kvöldið en algjör kvöl fyrir þá sem eru með barnið daginn eftir (oftast foreldrar).

Related Posts with Thumbnails