7. desember 2007

Týndur frakki

Við fórum, öll stórfjölskyldan, á jólahlaðborð á Lækjarbrekku í kvöld. Sem var frábært, alveg þangað til við ætluðum heim. Þá kom í ljós að frakkinn hans Sigga var ekki í fatahenginu! Hann keypti frakkann í október þegar við vorum í Budapest. Rosa fínn frakki. Fúlt, fúlt, fúlt, arg.



Annars er laufabrauðið á dagskrá á morgun hjá mömmu, svo ætlum við Svala að hittast á sunnudaginn og reyna að lesa saman fyrir þetta próf sem við förum í á þriðjudaginn.



Ég byrjaði að prenta út dagatölin í dag, mig vantar ennþá myndir frá sumum til að gera dagatalið fyrir ömmu og afa. Ég ætla að klára þetta um helgina, prenta rest á mánudaginn og koma þessu í gormun á mánudag! Það hlýtur að takast.
Ég fór með stelpurnar í stúdóið sem IH er búin að útbúa í Engjaskóla í síðustu viku og tók jólamyndir af þeim. Þær tókust bara svaka vel, þó engin væru stúdíóljósin, bara flassið á vélinni notað. Ég á örugglega eftir að nota þetta oftar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

rooooosalega krúttleg mynd af dömunum :)

ömurlegt með frakkann - ekki ætlast þeir til að maður sitji inni í yfirhöfnunum eins og skólakrakki???

Related Posts with Thumbnails