4. nóvember 2012

Brauðbakstur

http://www.tipjunkie.com/all-crafts/artisan-bread-recipe/
Ég gerði tilraun 2 til að baka þetta brauð um helgina. Ég var búin að sjá þetta á Pinterest fyrir nokkru síðan og langaði að prófa. Þetta er ótrúlega einfalt brauð og tekur enga stund en biðtíminn er svolítið langur eða 14-20 klst.
1 bolli er u.þ.b. 2,5 dl.

Hér er uppskriftin:
3 bollar hveiti (ég notaði 2 af hveiti og 1 af heilhveiti)
1/4 tsk þurrger
1 1/2 tsk salt
1 1/2 bolli volgt vatn

Þetta er hrært saman í skál með sleif. Það þarf ekki að hræra mikið og þetta lítur ekkert sérstaklega vel út þegar búið er að hræra en það er allt í lagi. Strekkið plastfilmu yfir skálina og látið standa á borði í 14-20 klst.

Næsta dag: Deigið hefur tvöfaldast að stærð, er með loftbólum og lyktar af geri. Hvolfið deiginu úr skálinni á borð með hveiti eða durumhveiti (þetta gula sem fæst í IKEA fyrir pizzurnar). Brjótið deigið saman nokkrum sinnum þar til það líkist kúlu. Takið hreint, vel þvegið viskustykki og stráið durumhveiti og hveiti á það, setjið brauðkúluna á, stráið meira hveiti yfir og lokið með hinum helmingnum af viskustykkinu. Látið standa í tvo tíma. Þegar einn tími er liðin, kveikið á ofninum (230°C) og setjið leirpott með loki inn til að hita hann. Þegar tveir tímar eru liðnir, takið leirpottinn úr ofninum og hvolfið brauðinu ofan í heitan pottinn. Setjið lokið á og bakið í ofninum í 30 mínútur. Takið lokið af og bakið í 10-15 mínútur í viðbót.

Látið kólna í 30-60 mínútur og njótið!

Related Posts with Thumbnails