Ljósmyndun

Listi yfir sýningar sem ég hef tekið þátt í:


Ljósmyndakeppnir sem ég hef tekið þátt í:

Allar myndir á þessu bloggi eru eftir mig nema annað sé tekið fram.

Ljósmyndaáhuginn hefur alltaf blundað í mér en það var ekki fyrr en vorið 2007 sem ég tók við mér. Það vor keypti ég mér fyrstu alvöru myndavélina mína Canon EOS 400D. Henni var svo stolið í innbroti heima hjá okkur sumarið 2008 og fyrir tryggingaféð náði ég að kaupa mér sambærilega vél eða Canon EOS 450D.
Ég fór á námskeið hjá Pálma (http://www.ljosmyndari.is/) vorið 2007 og það námskeið kom mér vel af stað og ég hætti eiginlega að nota græna takkann (auto). Síðan þá hef ég verið inn á síðum eins og Flickr og http://www.ljosmyndakeppni.is/ og lært heilmikið þar. Haustið 2007 fór ég svo að venja komur mínar á fundi hjá áhugamannafélaginu Fókus (http://www.fokusfelag.is/) en þar er mikið af góðu og fróðu fólki sem hægt er að læra af. Ég er einnig búin að ljúka 6 anna fjarnámi á listnámsbraut í Borgarholtsskóla í prent- og skjámiðlun, þar sem komið er inn á ljósmyndun og allskonar vinnslu tengdri henni.
Related Posts with Thumbnails