Þessi kommóða geymir alla dúkana mína og mig hefur langað að gera eitthvað fyrir hana lengi. Ég er með húsgögn úr Liatorp línunni frá IKEA annars staðar í stofunni og fór því í umbúðalaust í IKEA og pantaði höldur á kommóðuna í stíl við annað í stofunni.
Ég pússaði upp borðplötuna, gróf upp afgang af límmiðum frá Sveinbjörgu og límdi á borðplötuna. Svo tók ég smávegis af hálfmatta gluggalakkinu sem ég er að mála stofugluggana með, hellti því í dós og þynnti með vatni. Penslaði þessu glundri á borðplötuna og lét þorna.
Þegar málningin var orðin þurr, kroppaði ég límmiðana af og er bara nokkuð sátt við útkomuna. Ég pússaði létt yfir með fínum sandpappír og er að velta fyrir mér hvort það þurfi að lakka yfir þetta allt saman.
Höldurnar komnar á. Allt annað að sjá þetta.
26. júní 2014
5. júní 2014
DIY garðborðið mitt fær andlitslyftingu
Stóra borðið á pallinum var farið að láta á sjá og því ákvað ég að hreinsa mósaíkflísarnar af því og breyta útlitinu. Ég fór auðvitað á Pinterest og safnaði hugmyndum í nýja möppu til að vinna út frá. Mig langaði að nota vörubretti og helst fá svolítið grófan við. Pabbi var svo elskulegur að koma færandi hendi með tvö stór vörubretti sem ég reif í sundur og naglhreinsaði, ég fékk smá aðstoð við að búta fjalirnar í réttar lengdir og ég pússaði, málaði og pússaði meira.
Ég fór í Húsasmiðjuna og keypti málningu og fermingardrengurinn sem afgreiddi mig sagði það góða hugmynd að nota Lady innanhúsmálningu í svona verkefni þar sem sú málning væri akrílmálning og það er víst bara gott. Ég keypti því eina prufudós af bláa litnum en átti hvítt og grænt í bílskúrnum.
Ég ákvað að olíubera borðið í lokin til að skerpa á litunum og finnst það hafa heppnast vel. Vona að þessar tilfæringar mínar séu ekki mjög misheppnaðar en það verður tíminn að leiða í ljós.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)