26. júlí 2009

Ný Photoshop þekking

Í dag lærði ég að nota clipping mask í Photoshop, það er einfaldara en ég hélt og ég sé nú þegar ótal möguleika í notkun. Þetta storyboard er frá coffeeshop (tengill hér hægra megin), litlu rammarnir koma tilbúnir og maður setur inn í þá með clipping mask.
Myndin er af sólblómum á pallinum hjá mér. Ég keypti fræ í vor og sáði fyrir þeim í eldhúsglugganum hjá mér, flutti þau svo út þegar fór að hlýna og nú eru þau að blómstra. Í pottinum eru 6 plöntur og það eru nokkrir knúppar á hverri plöntu. Þetta er eitthvað baby afbrigði af sólblómum þannig að þau verða ekki nema um hálfur metri á hæð eða minni.

24. júlí 2009

Picnic á Selfossi og nágrenni

Miðvikudaginn 22. júlí fórum við í picnic á Selfoss. Við byrjuðum á því að skoða rústir Valhallar á Þingvöllum sem brann 10. júlí s.l. Síðan fórum við á Selfoss þar sem Sandra hitti okkur og skilaði Ólöfu af sér en hún var búin að gista hjá Söndru í 2 nætur.

Við fengum okkur nesti í garðinum við tjaldstæðið á Selfossi í yndislegu veðri. Í nestiskörfunni var nýbakað brauð, randakaka, kaffi, djús og perusider. Stelpurnar léku sér saman og voru glaðar.


Þetta er dæmigerð mynd af Emmu, hún stoppar ekki lengi við, hún þurfti að kanna umhverfið og því var ekki tími til að sitja með okkur nema augnablik í einu.



Nöfnurnar Þórunn Margrét og Margrét.

19. júlí 2009

Endurvinnsludagur í gær

Ég sló grasið í gær. Takið eftir rósarunnanum mínum við fjarendann á girðingunni.
Fór síðan í Sorpu með:
- gras
- dagblöð
- plast
- sléttan pappa
- og bylgjupappa



Svona erum við umhverfisvæn á þessu heimili. Við söfnum líka gleri, rafhlöðum og einnota drykkjarumbúðum. Það var bara ekki kominn tími á að fara með það í gær.


Þetta er rós úr runnanum mínum :-)


Húsmæðraorlofið endaði með hvelli í gær, en þá kom liðið mitt heim frá Ólafsfirði. Það var nú gott að fá þau heim, þó húsmæðraorlofið hafi verið ósköp indælt. Ólöf fór beint til mömmu og gisti þar en Þórunn fékk S vinkonu sína í gistingu til okkar. Þær voru nú svo "elskulegar" að stinga af út um miðnætti með stæl eða með öðrum orðum út um gluggann og komu svo heim aftur um hálftvö. Ég gómaði þær þegar þær skriðu inn um gluggann aftur og þær voru heldur lúpulegar í dag, hehehe.

15. júlí 2009

Fimmti í húsmæðraorlofi

Þessi er tekin í síðustu viku. Okkur Ólöfu þykir svo gaman að baka muffins.

Picnic í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Við fórum í gróðrastöðina Dalsgerði, í Skallagrímsgarð, í fatabúðir á Akranesi og síðan heim aftur. Góður dagur með góðu fólki.

Nýbakað bananabrauð, muffins, kaffi, perucider og djús á borðinu.

Flottar mæðgur.


Sætar saman.
Þetta var skemmtilegur dagur og alveg passlegt ferðalag, miðað við að vera með eina 9 mánaða og eina tæplega 2 ára.

5. júlí 2009

Fjölskylduboð

Hér var skemmtilegt matarboð í gærkvöldi. Tvær systur hans tengdapabba sem búa í Bandaríkjunum eru í heimsókn og svo vildi svo vel til að Ninna, Inga og fylgifiskar voru í bænum líka þannig að við buðum þeim í mat. Stebba og Jón Þór komu með flottar skyrtertur í eftirrétt. Þessi hópmynd var tekin við þetta tækifæri.

1. júlí 2009

Dansk er dejlig

Ég var að koma úr búðinni þar sem ég vígði nýju hjólakörfuna mína, var eins og fín dönsk frú, ótrúlega skemmtilegt. Það er einhvern veginn allt svo frábært þegar veðrið er svona ljúft.
Við mæðgur skelltum okkur líka á kaffihúsið í Grasagarðinum í hádeginu í dag og hittum þar fullt af flottum skvísum úr E..skóla. Reyndar var ég í Grasagarðinum í gærkvöldi líka í síðasta sumarhittingi Fókusfélaga, það var alveg himneskt, algjört logn og hlýindi með eindæmum. Ég tók fullt af flottum myndum, ótrúlega margar sem heppnuðust vel í gær, nokkrar komnar inn á Flickr síðuna mína.
Annars er mín byrjuð í hlaupaþjálfun! Ó já látið ekki líða yfir ykkur. Elín vinkona mín sagði mér frá frábærri síðu um daginn http://www.c25k.com/ þar sem hægt er að hlaða niður podcasti til að setja í iPodinn og svo er bara einhver hugguleg karlmannsrödd sem segir manni hvenær maður á að hlaupa og hvenær maður á að labba rösklega og undir þessu er tónlist (að vísu ekki alveg eftir mínum smekk, en hvað um það). Það besta við þetta er að þessi huggulegi maður segir mér alltaf reglulega hvað ég sé nú dugleg og frábær að hlaupa svona mikið, og auðvitað trúi ég honum, varla lýgur hann!
Related Posts with Thumbnails