1. júlí 2009

Dansk er dejlig

Ég var að koma úr búðinni þar sem ég vígði nýju hjólakörfuna mína, var eins og fín dönsk frú, ótrúlega skemmtilegt. Það er einhvern veginn allt svo frábært þegar veðrið er svona ljúft.
Við mæðgur skelltum okkur líka á kaffihúsið í Grasagarðinum í hádeginu í dag og hittum þar fullt af flottum skvísum úr E..skóla. Reyndar var ég í Grasagarðinum í gærkvöldi líka í síðasta sumarhittingi Fókusfélaga, það var alveg himneskt, algjört logn og hlýindi með eindæmum. Ég tók fullt af flottum myndum, ótrúlega margar sem heppnuðust vel í gær, nokkrar komnar inn á Flickr síðuna mína.
Annars er mín byrjuð í hlaupaþjálfun! Ó já látið ekki líða yfir ykkur. Elín vinkona mín sagði mér frá frábærri síðu um daginn http://www.c25k.com/ þar sem hægt er að hlaða niður podcasti til að setja í iPodinn og svo er bara einhver hugguleg karlmannsrödd sem segir manni hvenær maður á að hlaupa og hvenær maður á að labba rösklega og undir þessu er tónlist (að vísu ekki alveg eftir mínum smekk, en hvað um það). Það besta við þetta er að þessi huggulegi maður segir mér alltaf reglulega hvað ég sé nú dugleg og frábær að hlaupa svona mikið, og auðvitað trúi ég honum, varla lýgur hann!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Jóhanna. :)

Sniðugt hjá þér að byrja að hlaupa, ég ætla að gera það líka, er búin að vera að hugsa um að fara að hlaupa í langan tíma. Sniðugt að hafa einn myndarlegan leiðbeinanda til að hvetja mann áfram ;) þetta ætla ég að kíkja á.

Eigðu góða hlaupadaga.
Kær kveðja, Nína Margrét :)

Related Posts with Thumbnails