24. júlí 2009

Picnic á Selfossi og nágrenni

Miðvikudaginn 22. júlí fórum við í picnic á Selfoss. Við byrjuðum á því að skoða rústir Valhallar á Þingvöllum sem brann 10. júlí s.l. Síðan fórum við á Selfoss þar sem Sandra hitti okkur og skilaði Ólöfu af sér en hún var búin að gista hjá Söndru í 2 nætur.

Við fengum okkur nesti í garðinum við tjaldstæðið á Selfossi í yndislegu veðri. Í nestiskörfunni var nýbakað brauð, randakaka, kaffi, djús og perusider. Stelpurnar léku sér saman og voru glaðar.


Þetta er dæmigerð mynd af Emmu, hún stoppar ekki lengi við, hún þurfti að kanna umhverfið og því var ekki tími til að sitja með okkur nema augnablik í einu.



Nöfnurnar Þórunn Margrét og Margrét.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails