Komin í helgarfrí, fyrsti sunnudagur í aðventu innan skamms, laufabrauð og piparkökuskreyting fljótlega og ég ekki byrjuð að baka smákökur, hvað er að gerast? Yfirleitt byrja ég að baka smákökur um miðjan október eða í síðasta lagi í byrjun nóvember. Ég ÆTLA að baka eitthvað um helgina, þessi jólasnjór æpir á bakstur og kósíheit.
Ég held ég hafi aldrei haft eins lítið fyrir aðventukransi og í þetta skiptið, kertin eru úr Söstrene Grene og tölustafirnir einnig, kúlurnar eru úr RL-vöruhúsi og bakkann átti ég uppi í skáp.
17. nóvember 2011
Hinar einu sönnu bollakökur
Súkkulaðikaka í 2 kaffibollum.
4 msk hveiti
3 msk sykur
3 msk kakó
1 egg (hrært)
1/4 tsk salt
1/4 tsk lyftiduft
3 msk mjólk
1 msk olía
Allt sett í litla skál og hrært með pískara. Hellið deiginu í 2 kaffibolla. Setjið í örbylgjuofn, einn bolla í einu, á fullum styrk í rétt rúmlega eina mínútu (fer samt eftir ofninum).
Uppskriftin er héðan. Í upphaflegu uppskriftinni á að setja karamellur í deigið áður en það er bakað, mér sýnist þetta vera svona eins og Freyju karamellurnar. mmmm væri snilld að kaupa karamellur og prófa það, við notuðum bara heita karamellusósu og rjóma yfir.
13. nóvember 2011
Verslunarferð
Alltaf er nú gott að koma heim aftur. Stórfjölskyldan lagði land undir fót (dekk) og skrapp til Akureyrar í helgarferð þessa helgi. Planið var að versla svolítið, njóta samvista við fjölskylduna og hafa það huggulegt í höfuðstað norðurlands. Við vorum svo heppin að fá alveg hreint yndislegt veður, logn, 6°C hita og úrkomulaust alla helgina. Það var nú líka eins gott því ég er eins veðurhrædd og hægt er að vera, vil alls ekki vera á ferðinni í leiðinlegu veðri eða vita af nokkrum í minni nánustu fjölskydu úti á vegum.
Ég skil nú ekki alveg af hverju norðanfólkið flykkist í stórum stíl suður yfir heiðar eða jafnvel til útlanda. Á Akureyri eru fínustu búðir, veitingastaðir og svo auðvitað Jólagarðurinn við Hrafnagil en þar enduðum við ferðina áður en lagt var af stað í bæinn.
Ég keypti mér dásamleg rauð leðurstígvél fyrir norðan, sæta spætan keypti sér flottan fjólubláan sparibol og svo keyptum við sitt lítið af hverju í viðbót, m.a. krúttlegt jóladagatal sem ég ætla að gera eitthvað sniðugt við.
Ég verð nú samt að enda þessa færslu á væli yfir vegalengdinni sem þurfti að keyra til að gera þessa ferð mögulega. Þetta er nú alveg fáránlega langt, 5 tíma ferðalag hvora leið! Eins gott að maður á ekki erindi þarna norður nema einu sinni til tvisvar á ári.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)