17. nóvember 2011
Hinar einu sönnu bollakökur
Súkkulaðikaka í 2 kaffibollum.
4 msk hveiti
3 msk sykur
3 msk kakó
1 egg (hrært)
1/4 tsk salt
1/4 tsk lyftiduft
3 msk mjólk
1 msk olía
Allt sett í litla skál og hrært með pískara. Hellið deiginu í 2 kaffibolla. Setjið í örbylgjuofn, einn bolla í einu, á fullum styrk í rétt rúmlega eina mínútu (fer samt eftir ofninum).
Uppskriftin er héðan. Í upphaflegu uppskriftinni á að setja karamellur í deigið áður en það er bakað, mér sýnist þetta vera svona eins og Freyju karamellurnar. mmmm væri snilld að kaupa karamellur og prófa það, við notuðum bara heita karamellusósu og rjóma yfir.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
Hrein snilld.
Verð að prufa þett.
Frábært Frú Galin
Kveðja
Sandra
ég kveikti næstum því í kofanum í sumar þegar ég prófaði þessa ...... ehemmm
ég held að karamellan sem er þarna inni sé ekki eins hörð og Freyjukaramella - myndi frekar prófa þessar mjúku sem fást á nammibarnum
knúsar
Skrifa ummæli