Er alveg að verða háð þessu!23. júlí 2008
21. júlí 2008
Hvað er þetta ...
... með póstinn hjá Menntasviði, tölvupósturinn er búinn að vera bilaður meira og minna í heila viku. Ef þetta heldur svona áfram verður maður bara að fá sér pósthólf einhvers staðar annars staðar.
18. júlí 2008
Í sól og sumaryl
Þetta er nú meiri blíðan, geggjað veður dag eftir dag.
Ég er búin að vera í sólbaði og vinnandi þessi venjulegu húsverk til skiptis þessa síðustu daga. Ég reyni að njóta lífsins með swiss mocca á pallinum og tímarit á milli þess sem ég set í þvottavél, í uppþvottavél, þríf klósett, sópa gólf, þríf bílinn, færi til hluti og gef börnum hverfisins að borða. Á morgun er planið að halda áfram að njóta góða veðursins og slá jafnvel blettinn ef vel liggur á mér.
Jarðaberjaplönturnar á pallinum dafna vel, nú þegar erum við búin að fá þó nokkra uppskeru og von á meiru.

Ó já, ekki má gleyma því, þessa helgi eru 21 ár síðan við Siggi kynntumst í Þórsmörk í ferð með Ísgerð EmmEss. Hihi ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar farið í Þórsmörk, veit ekki hvort ég þori aftur, hihi.
kl.
23:07
Engin ummæli:
11. júlí 2008
Always look on the bright side of life ...
Ég er að reyna að horfa jákvætt á þetta innbrot. Það gengur ágætlega þegar ég hugsa til þess að nú get ég keypt mér Canon 450D (eða jafnvel 40D) þegar við fáum greitt úr tryggingunum, en svo þegar ég er að fara að sofa eða fara út úr húsinu hugsa ég: ætli þeir komi aftur? Og það er mjög óþægileg tilfinning.
Ólöf þarf svolítið að tala um innbrotið, í gærkvöldi bað hún mig að loka glugganum (hún sefur oftast með opinn gluggann), örugglega svo það kæmu ekki þjófar inn um gluggann hennar.
Þórunn er svo spæld yfir tölvunni sinni og iPodinum en ber sig samt vel.
Nýja útlitið á síðunni er í boði www.shabbyprincess.com sem Ariana blogvinkona mín í Ameríku kenndi mér (og öðrum) að nota.

10. júlí 2008
arg !!! urr !!! ojbara !!!
Það var brotist inn hjá okkur í dag og öllum nýlegum raftækjum stolið. Öllum skartgripunum mínum en mest græt ég þó yfir myndavélinni minni, snökkt.
7. júlí 2008
Útilega
Ó já, mín fór í útilegu um helgina í tjaldvagninum. Reyndar var það fínt, gat eiginlega ekkert kvartað, nýjar dýnur (mjög góðar), æðislegur svefnpoki, dásamlegt veður og frábært tjaldstæði í Skorradal.
Sjálfsmynd af fjölskyldunni, vantar bara unglinginn inn á myndina.
Ólöf var ekki lengi að finna sér vinkonur. Þessar búa líka í Grafarvoginum, lítið land!
1. júlí 2008
Ævintýri
Í kvöld fórum við Siggi, Ólöf og Guðrún María með Fókusfélaginu heim til Hrafns Gunnlaugssonar til að mynda.
Hrafn var heima og sagði okkur að við mættum fara um allt hjá honum, honum fannst bara gaman að fá okkur í heimsókn.
Eini gallinn var að öll rigning júnímánaðar féll á þessum klukkutíma. Við létum það ekki stoppa okkur, pökkuðum vélunum inn í nestispoka, renndum úlpunum upp í háls og þrömmuðum af stað.
Ég er svo glöð að við skildum fara því þetta var einstakt tækifæri til að sjá Ævintýraland í miðri stórborg.
Það var svo mikil rigning að ég sá eiginlega ekki hvað ég var að mynda, smellti bara af í gríð og erg og vonaði það besta. Ég var sennilega með tímastillinguna stillta aðeins of hratt því allar myndirnar mínar voru mjög dökkar. Þess vegna er ég búin að vera að lýsa allar 64 myndirnar í PS og ætla svo að setja þær bestu inn á Flickr. Hér er samt ein af pallinum.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)