1. júlí 2008

Ævintýri

Í kvöld fórum við Siggi, Ólöf og Guðrún María með Fókusfélaginu heim til Hrafns Gunnlaugssonar til að mynda.

Hrafn var heima og sagði okkur að við mættum fara um allt hjá honum, honum fannst bara gaman að fá okkur í heimsókn.

Eini gallinn var að öll rigning júnímánaðar féll á þessum klukkutíma. Við létum það ekki stoppa okkur, pökkuðum vélunum inn í nestispoka, renndum úlpunum upp í háls og þrömmuðum af stað.

Ég er svo glöð að við skildum fara því þetta var einstakt tækifæri til að sjá Ævintýraland í miðri stórborg.

Það var svo mikil rigning að ég sá eiginlega ekki hvað ég var að mynda, smellti bara af í gríð og erg og vonaði það besta. Ég var sennilega með tímastillinguna stillta aðeins of hratt því allar myndirnar mínar voru mjög dökkar. Þess vegna er ég búin að vera að lýsa allar 64 myndirnar í PS og ætla svo að setja þær bestu inn á Flickr. Hér er samt ein af pallinum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Iss þetta er nú meira sóðabýlið - gott að hann er ekki nágranni minn þessi krummi....

Related Posts with Thumbnails