Ég er búin að vera í sólbaði og vinnandi þessi venjulegu húsverk til skiptis þessa síðustu daga. Ég reyni að njóta lífsins með swiss mocca á pallinum og tímarit á milli þess sem ég set í þvottavél, í uppþvottavél, þríf klósett, sópa gólf, þríf bílinn, færi til hluti og gef börnum hverfisins að borða. Á morgun er planið að halda áfram að njóta góða veðursins og slá jafnvel blettinn ef vel liggur á mér.
Jarðaberjaplönturnar á pallinum dafna vel, nú þegar erum við búin að fá þó nokkra uppskeru og von á meiru.
Ó já, ekki má gleyma því, þessa helgi eru 21 ár síðan við Siggi kynntumst í Þórsmörk í ferð með Ísgerð EmmEss. Hihi ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar farið í Þórsmörk, veit ekki hvort ég þori aftur, hihi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli