27. janúar 2010
Svínið
Fór með fjölskylduna í svínaflensusprautu á mánudaginn. Mættum þarna öll fjögur og ég stakk upp á því að ÞM yrði fyrst þar sem henni hættir við yfirliðum á svona stundum. Hún fékk að leggjast upp á bekk og tók þar á móti sprautunni með hetjutárum (eða þannig). Svo fengum við fullorðna fólkið okkar skammt og á meðan lá unglingurinn enn á bekknum til að jafna sig. Sú stutta var svo síðust og stóð sig eins og hetja. Við fórum svo fram á biðstofuna til að bíða eftir ofnæmisviðbrögðum ef einhver væru. Stuttu eftir að við komum þangað fram hvítnar sú stutta og ég neyðist til að fara með hana aftur inn til að leggjast á bekkinn fræga. Þar sat ég með henni í tæpar 15 mínútur á meðan hún lá með fætur upp í loft. Þá loksins gátum við farið heim. Það var sem betur fer starfsdagur í skólanum þannig að sprautusysturnar gátu hvílt sig og jafnað sig eftir hörmungarnar. ÓH gekk svo um allan þann dag og mestan daginn í gær með vinstri handlegginn máttlausan niður með síðunni, þ.e. þegar hún gleymdi sér ekki í einhverju skemmtilegu, þá var allt í lagi með hana.
kl.
23:10
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan
18. janúar 2010
Meiri handavinna
Ljósmyndavettlingar gerðir úr cotton/wool garni úr Storkinum. Hef prófað þá í -10°C og þeir virkuðu mjög vel.
Merkimiðar:
Handavinna,
Ljósmyndun
16. janúar 2010
Uppgangur í handavinnu frúarinnar
Ég er búin að vera ótrúlega dugleg í handavinnu síðustu vikur, þó ég segi sjálf frá. Ég kláraði lopapeysuna mína sem ég byrjaði á í haust, þríhyrnu úr japönsku ShiBui garni og heklaða einbandsvettlinga. Vettlingana var ég að klára núna áðan, á eftir að fela enda og skreyta einhvern veginn skemmtilega. Nú verð ég hins vegar að setja kraft í BHS námið mitt og hætta þessari handavinnu í bili.
Merkimiðar:
Handavinna,
Ljósmyndun
3. janúar 2010
Vinna á morgun

Sennilega eru frekar miklar líkur á því að ég sofi yfir mig í fyrramálið. Undanfarna daga hef ég verið að vakna um leið og birtir, sem er svona rétt rúmlega 10. Þar sem ég á að mæta fyrir kl. 9 í fyrramálið gæti þetta orðið vandamál.
Annars hefur þetta verið langt og gott jólafrí, við mæðgur misstum okkur aðeins í namminu en maður má það alveg svona einu sinni á ári, er það ekki?
Annars hefur þetta verið langt og gott jólafrí, við mæðgur misstum okkur aðeins í namminu en maður má það alveg svona einu sinni á ári, er það ekki?
Prófaði svona "custom made bokeh" í dag. En þá setur maður pappahólk með gati (hér stjörnulaga gati) framan á linsuna og tekur myndina þannig. Ég hef prófað þetta áður og þá mistókst það, núna las ég leiðbeiningarnar betur (munið RFM) og þá tókst það. Galdurinn er víst að hafa ljósopið nógu stórt, a.m.k. f1.8. Sjáið leiðbeiningarnar hér
kl.
22:55
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Ljósmyndun,
Vinnan
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
