16. janúar 2010

Uppgangur í handavinnu frúarinnar

Ég er búin að vera ótrúlega dugleg í handavinnu síðustu vikur, þó ég segi sjálf frá. Ég kláraði lopapeysuna mína sem ég byrjaði á í haust, þríhyrnu úr japönsku ShiBui garni og heklaða einbandsvettlinga. Vettlingana var ég að klára núna áðan, á eftir að fela enda og skreyta einhvern veginn skemmtilega. Nú verð ég hins vegar að setja kraft í BHS námið mitt og hætta þessari handavinnu í bili.

2 ummæli:

Guðný sagði...

nei ekki hætta, það er nauðsynlegt að hafa það með, grípa í þegar maður er orðinn ruglaður af skólabókunum, besta slökun sem völ er á.

Nafnlaus sagði...

þú er alltaf svo dugleg, þetta er rétt hjá Guðnýju maður verður alltaf að hafa eitthvað til að dreifa huganum eða til að grípa í. Svo ekki Leggja þetta frá þér ;) alveg

kv Þuríður
p.s það verður gaman að sjá peysuna

Related Posts with Thumbnails