
Við systur fórum á Fókusrölt í vesturbænum í gærkvöldi. Það voru 15 manns sem mættu og Kim og Helga leiddu hópinn um bakgarða og falda fjársjóði vesturbæjarins í tvo tíma. Þetta var alveg ævintýralegt og ótrúlega gaman að sjá eitthvað annað en Hringbrautina í vesturbænum. Veðrið skemmdi nú heldur ekki, logn og sól. Ég tók rúmlega 100 myndir og er búin aðs setja nokkrar inn á Flickr og set örugglega fleiri bráðum. Næstu 5 þriðjudaga verður svo rölt um: Kópavog (Digranesið), Laugarnesið, Langholtsveg, Gróttu og Grasagarðinn. Ég ætla að reyna að komast í allar þessar göngur, því ég er búin að ákveða að verkefni sumarsins verður að kynnast borginni minni betur. Það eru örugglega ótal svona perlur eins og vesturbærinn á stór-Reykjavíkursvæðinu sem gaman er að skoða.
