Bekkurinn hennar Ólafar spilaði á tónleikum í Grafarvogskirkju sl. laugardag. Bekkurinn hefur fengið flautukennslu einu sinni í viku í vetur frá Tónskóla Hörpunnar en þetta er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og nokkurra tónlistarskóla í borginni. Þessi kennsla heldur því miður ekki áfram næsta vetur vegna niðurskurðar (lesist: kreppunnar). Krakkarnir eru nú misdugleg að spila og Ólöf kallar fyrri hópinn ömurlega hópinn, hehe. Hún er í seinni hópnum í bleikum kjól, með rautt blóm í hárinu.
Í lok myndbandsins eru 4 krakkar úr bekknum sem spila Love me tender og tekst það bara vel. Ólöf er í þeim hópi, sem er kannski ekki skrítið því hún hefur verið mjög dugleg að æfa sig heima í vetur.
20. maí 2009
Tónleikarnir hennar Ólafar
kl.
21:16
Merkimiðar:
Fjölskyldan
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli