Í dag spilaði Þórunn á vortónleikum Tónskóla Hörpunnar í Grafarvogskirkju. Hún byrjaði að læra í október en hefur verið ótrúlega dugleg. Tónlistarnám liggur einstaklega vel fyrir henni, ætli hún hafi það ekki frá móður sinni ;-)
Sú yngri, Ólöf á svo að spila á sínum vortónleikum næsta laugardag kl. 11 á sama stað. Þetta verður því tónlistarveisluvika hjá okkur.
1 ummæli:
Flott spilað hjá dömunni. Gangi henni áfram vel.
Kær kv, Nína :)
Skrifa ummæli