Í gærmorgun fór ég ásamt mömmu, Guðnýju og Þuru mágkonu að skoða sýninguna hennar Þuru í Kennó. Þetta er rosa flott sýning og gaman að koma þarna aftur en það eru 15 ár síðan ég útskrifaðist.
Ég setti þvottavél, braut saman þvott og hengdi upp.
Þegar Þórunn kom heim úr skólanum tók ég hana með mér í Bónus til að versla. Ég var eins og fín frú með burðardýr ;-)
17:30 fór ég svo og hitti konurnar sem eru með mér í Borgó og við vorum að fikta og kenna hvor annarri á illustrator í einn og hálfan tíma.
Ég var svo þreytt eftir daginn að dagurinn í dag hefur verið algjör hvíldardagur, bíómynd (about a boy), friends þættir og afslappelsi. Vonandi hef ég meiri kraft á morgun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli