29. desember 2009

Skiptitíðin á enda

Jæja þá eru jólin búin, skiptidagarnir búnir og bara tveir dagar eftir af árinu. Ég þurfti að fara tvær ferðir í bæinn til að skipta jólagjöfum. Í gær gat ég fengið stærri peysu fyrir eiginmanninn (mín misreiknaði aðeins stærðina á honum), fékk inneignarnótu fyrir unglinginn í staðinn fyrir vestið hennar, og stærri peysu fyrir sætu spætuna. Sætan var ekki ánægð með val mitt á nýrri peysu fyrir hana þannig að við þurftum að fara aftur á Laugaveginn til að leyfa henni að velja, og tókum þá jólagjöf eiginmannsins til mín í leiðinni því sú búð var lokuð í gær. Búðin var samt eiginlega tóm eftir jólin þannig að ég fékk inneignarnótu og var sagt að nýjar vörur kæmu í febrúar.

Á morgun er planið að baka eitthvað gómsætt, klára aukavinnuna og kaupa flugelda ...

... já og ég vonast til að hafa tíma í smá ljósmyndarölt. Ekki skil ég hvernig ég á koma vinnunni fyrir þegar hún hefst eftir helgi, það er svo nóg að gera (reyndar sef ég þar til birtir en það getur varla verið ástæðan).

27. desember 2009

Jólatónleikar Þórunnar

Jólatónleikar Þórunnar from Jóhanna Höskuldsdóttir on Vimeo.

Jólatónleikar tónskóla Hörpunnar voru í Grafarvogskirkju þann 5. desember sl. Þórunn spilaði eitt lag og stóð sig vel eins og venjulega.

23. desember 2009

Þorláksmessa

Jólatréð var dregið inn í gær og sett í glænýjan og fagran jólatrésfót. Það er almenn fýla á heimilinu með stærðina á trénu, eða réttara sagt smæðina. Ég fékk sem sagt að ráða um þessi jól. Mér finnst nefnilega einstaklega ósmekklegt að vera með hálfan skóginn inni í stofu hjá mér, vil heldur lítið og krúttlegt jólatré. Dvergatréð er samt ekki svo lítið eða milli 170 og 180 cm hátt. Í fyrsta skipti í mörg ár fær engillinn okkar ekki hálsríg vegna nálægðar við loftið.

Þorláksmessan í dag. Það þýðir hið árlega skötuboð í hádeginu hjá tengdó. Ég reyndi í mörg ár að spila með í þessum leik, en fyrir nokkrum árum ákvað ég að eyða tíma mínum í eitthvað skemmtilegra og betur lyktandi og hef því farið einn rúnt á Laugaveginum á meðan aðrir í tengdafjölskyldunni háma í sig skötuviðbjóðinn. Í ár breytti ég út af vananum og ákvað að sitja í fýlunni og taka þátt að öllu leyti nema með því að borða skemmda matinn. Mér var ekki boðið sæti við borðið og settist því inn í stofu. Þar maulaði ég á sörum og reyndi að anda í gegnum munninn. Ætli ég fari ekki bara á Laugaveginn að ári.

21. desember 2009

Jólahreingjörningi miðar áfram ...

... sem er gott. Það er sorglega langt síðan þvottahúsið mitt hefur litið jafnvel út. Nú eru aðeins tvær jólagjafir ókeyptar en komin er góð hugmynd um hvað það á að vera svo þar er ekkert vandamál.

20. desember 2009

sjónvarp á sunnudagskvöldi

je minn eini hvað hann Alexander Rybak er mikið krútt!

11. desember 2009

Bakstur

Mmmmm, ég elska smákökur og smákökubakstur. Ég er búin að baka 3 uppskriftir af kókoshringjum, 2 uppskriftir af smákökum með súkkulaðibitum og eina uppskrift af engiferkökum og svo erum við líka búin að kaupa piparkökur og skreyta þær ... og þetta er eiginlega allt búið!

1. desember 2009

Desember

Jæja þá er desember mættur. Við erum búin að kveikja á jólaljósum úti og aðventuljósinu inni. Þetta er allra besti tíminn í skammdeginu, það er svo gott að fá smá ljós í myrkrið.

Ég er að horfa á prjónadiskinn "Prjónum saman" sem Ragnheiður Eiríksdóttir var að gefa út. Ég get alveg mælt með þessum diski, Ragga gerir þetta allt mjög skemmtilegt.

Nú erum við fjölskyldan að spá í að fá okkur hund. Við erum búin að spá og spekúlera í um mánuð núna og erum mest að spá í tegundina Cavalier King Charles Spaniel, sem er meðalstór (um 5 kg) hundur með ljúft og þægilegt skap, talinn auðveldur sem fyrsti hundur.
Related Posts with Thumbnails