Jólatréð var dregið inn í gær og sett í glænýjan og fagran jólatrésfót. Það er almenn fýla á heimilinu með stærðina á trénu, eða réttara sagt smæðina. Ég fékk sem sagt að ráða um þessi jól. Mér finnst nefnilega einstaklega ósmekklegt að vera með hálfan skóginn inni í stofu hjá mér, vil heldur lítið og krúttlegt jólatré. Dvergatréð er samt ekki svo lítið eða milli 170 og 180 cm hátt. Í fyrsta skipti í mörg ár fær engillinn okkar ekki hálsríg vegna nálægðar við loftið.Þorláksmessan í dag. Það þýðir hið árlega skötuboð í hádeginu hjá tengdó. Ég reyndi í mörg ár að spila með í þessum leik, en fyrir nokkrum árum ákvað ég að eyða tíma mínum í eitthvað skemmtilegra og betur lyktandi og hef því farið einn rúnt á Laugaveginum á meðan aðrir í tengdafjölskyldunni háma í sig skötuviðbjóðinn. Í ár breytti ég út af vananum og ákvað að sitja í fýlunni og taka þátt að öllu leyti nema með því að borða skemmda matinn. Mér var ekki boðið sæti við borðið og settist því inn í stofu. Þar maulaði ég á sörum og reyndi að anda í gegnum munninn. Ætli ég fari ekki bara á Laugaveginn að ári.
4 ummæli:
Svei mér þá - á næstu Þorláksmessu getum við tvær bara farið á Laugaveginn og fengið okkur huggulegt að borða og skrafað smá ;)
kv.e
já það líst mér vel á!
Gleðileg jól, Jóhanna og takk fyrir það liðna.
Kær kveðja, Nína Margrét :)
Nýjustu mælingar sýna að dvergatréð er nákvæmlega jafnhátt bróður mínum eða 184 cm!
Skrifa ummæli