29. desember 2009

Skiptitíðin á enda

Jæja þá eru jólin búin, skiptidagarnir búnir og bara tveir dagar eftir af árinu. Ég þurfti að fara tvær ferðir í bæinn til að skipta jólagjöfum. Í gær gat ég fengið stærri peysu fyrir eiginmanninn (mín misreiknaði aðeins stærðina á honum), fékk inneignarnótu fyrir unglinginn í staðinn fyrir vestið hennar, og stærri peysu fyrir sætu spætuna. Sætan var ekki ánægð með val mitt á nýrri peysu fyrir hana þannig að við þurftum að fara aftur á Laugaveginn til að leyfa henni að velja, og tókum þá jólagjöf eiginmannsins til mín í leiðinni því sú búð var lokuð í gær. Búðin var samt eiginlega tóm eftir jólin þannig að ég fékk inneignarnótu og var sagt að nýjar vörur kæmu í febrúar.

Á morgun er planið að baka eitthvað gómsætt, klára aukavinnuna og kaupa flugelda ...

... já og ég vonast til að hafa tíma í smá ljósmyndarölt. Ekki skil ég hvernig ég á koma vinnunni fyrir þegar hún hefst eftir helgi, það er svo nóg að gera (reyndar sef ég þar til birtir en það getur varla verið ástæðan).

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sama hér - gæti alveg sleppt því að mæta í vinnuna - nóg að gera án hennar hehe ;)
Hafið það nú rosalega gott yfir áramótin og vertu nú ekki að fikta með þessa flugelda kona....
Knúsar úr smáíbúðahverfinu.

Related Posts with Thumbnails