Fallegustu stelpurnar í bænum.
Fallega fjölskyldan mín kom í mat til okkar á annan í jólum.
Fallegt jólaveður, vona samt að það hætti að snjóa bráðum.
Fallegar bollakökur í fallega kökuhjálminum sem við fengum í jólagjöf.
Fallegi blómagatarinn minn getur klippt út svona fallega miða sem ég fann á Pinterest
Horfum á fallegu hliðar lífsins og njótum þess að vera til.
29. desember 2011
Hjálpin
Við mæðgur fórum til mömmu í gær og horfðum á bíómyndina "The help". Við vorum báðar búnar að lesa bókina og fannst hún góð en bíómyndin var ekki síðri. Ég er nú búin að sjá fjöldann allan af myndum sem fjalla um svipað efni og er alltaf jafnhissa að þetta hafi viðgengist og ekki fyrir svo löngu síðan, það eru ekki nema svona 40-50 ár síðan þetta átti sér stað. Einhver sagði að það tæki 80 ár að breyta viðhorfum fólks og miðað við suma í tengdafjölskyldunni er enn nokkuð langt í land með að jafnrétti þyki sjálfsagður hlutur.
Merkimiðar:
bíó,
Fjölskyldan,
jafnrétti
24. desember 2011
Jólin eru komin
24. desember, aðfangadagur: Messa hefur verið sungin, matur hefur verið borðaður, ís hefur farið inn fyrir okkar varir, pakkar hafa verið opnaðir, spil hefur verið spilað.
Tinni gerði sér miklar vonir um að fá hangikjöt, en fékk bara smá bita.
Gleðileg jól og kærleikskveðjur til allra vina og ættingja nær og fjær. Við þökkum fallegar og góðar gjafir til okkar.
Tinni gerði sér miklar vonir um að fá hangikjöt, en fékk bara smá bita.
Gleðileg jól og kærleikskveðjur til allra vina og ættingja nær og fjær. Við þökkum fallegar og góðar gjafir til okkar.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Hundahald,
jól
23. desember 2011
Fyrsta jólaboðið
23. desember, Þorláksmessa: Í kvöld héldum við fyrsta jólaboðið þessi jól. Stjúpdóttirin og hennar fjölskylda komu til okkar, borðuðu kalkún og við höfðum það huggulegt saman. Hún er því miður ekki alveg laus við afleiðingar aðgerðarinnar sem hún fór í í byrjun mánaðarins enda er erfitt að halda kyrru fyrir og hvíla sig þegar maður á tvö börn og jólin alveg að bresta á. Hún er því ósköp slöpp greyið þessa dagana, vonandi nær hún að hvíla sig vel næstu vikurnar svo hún geti farið að byggja upp kraftinn að nýju. En það var gott að fá þau í heimsókn og gaman að spjalla og njóta samvista við þau. Það er nefnilega það sem svona hátíðir snúast um, að vera með ástvinum sínum.
Nú hefur pökkunum fjölgað undir trénu þó ekki hafi þeir allir skilað sér í hús ennþá. Við erum búin að koma öllum pökkum af okkur nema til ömmu en hann kemst til skila í fyrramálið.
Þá er bara einn dagur eftir af þessu dagatalsverkefni. Mér hefur fundist þetta skemmtilegt og ég held bara að það verði skrítið þegar þetta klárast. Kannski ég taki nýtt verkefni fyrir í janúar, ég væri til í að finna eina góða hugmynd á Pinterest á hverjum degi og spjalla um hana, eða kannski framkvæma!

kl.
23:19
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
heilsa,
jól,
Pinterest
22. desember 2011
Bráðum koma blessuð jólin
22. desember: Jæja þá er allt klárt, við mæðgur kláruðum síðustu hreingerninguna í dag. Nú mega jólin fara að sýna sig. Við ætlum reyndar að halda litlu jólin á morgun, þar sem heimasætan er að syngja í messu að aðfangadag. Á morgun fáum við stjúpdótturina og hennar fjölskyldu í mat til okkar, verðum með kalkún og læti.
Jólalyktin komin í hús með smákökum og mandarínum í bland við hreingerningalyktina. Ég skellti þremur tegundum af smákökum í ofninn í morgun (deig úr IKEA). Á morgun fer eiginmaðurinn í foreldrahús í skötu, ég er ekki enn búin að ákveða hvort ég fer með eða ekki. Ætli það ráðist ekki af því hvað stelpurnar vilja gera.
Smá hundasaga í lokin, aðalleiktíminn hans Tinna er á kvöldin, þá nær hann í eitthvað af dótinu sínu, kemur með það og leggur í lófann á mér og vill að ég togist á við hann.

21. desember 2011
Jólagjafir: check
21. desember: Allar jólagjafir hafa nú verið keyptar (vona að ég sé ekki að gleyma neinum, biðst innilega afsökunar ef það er að gerast). Fór með dætrunum í sitthvoru lagi í dag til að ljúka við restina af gjöfunum.
Jólatréð er skreytt og stofan orðin hrein. Það er smá lokahreingernig eftir, sérstaklega baðherbergin en allir vita að það er ekkert hægt að gera það mörgum dögum eða vikum fyrr. Svo skipti ég ekki á rúmunum fyrr en á aðfangadag.
Ég er ótrúlega ánægð með að hafa ekki misst úr dag í þessu blogverkefni í þessar þrjár vikur sem þetta hefur staðið yfir. Vona að ekkert klikki síðustu 3 dagana.

23:02
Engin ummæli:
Merkimiðar:
jól
20. desember 2011
Gjafir
20. desember: Herra og frú Galin brugðu sér í bæinn seinni partinn í dag og luku við helstu jólagjafakaupin. Við erum nú yfirleitt ekki lengi að þessu þegar við förum loksins af stað. Það er nú alltaf töluverður léttir þegar sér fyrir endann á jólagjöfunum. Ég myndi samt ekki vilja gera þetta neitt öðruvísi, ég gæti t.d. aldrei verslað jólagjafir fyrr á árinu, þá hef ég enga hugmynd um hvað fólk langar í.
Síðasti kennsludagur í dag fyrir jólafrí. Dagurinn var stuttur og ljúfur, við mæðgur vorum svo heppnar að lenda á sama jólaballi og gátum því verið samferða í morgun. Sæta spætan stóð alveg undir nafni í dag með fallega brosið sitt og fallega hárið. Um hádegi í dag vorum við svo báðar komnar í kærkomið jólafrí.
Hreingjörningi fer að ljúka og nú fer að koma tími á prjónaskap, bókalestur, útsaum, góðan mat, skemmtilegar bíómyndir o.s.frv.
Sko til jólaandinn hefur náð mér :)

22:23
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
jól,
Vinnan
19. desember 2011
Pirruð
19. desember: er ekki alveg í stuði til að blogga núna, er pisst. Heimasætan fékk jólagjöfina frá vinnunni sinni (sem hún vinnur tvo daga vikunnar, síðan í ágúst) og hún fékk meira en ég hef fengið frá minni vinnu sl. 15 ár samtals. Ef þetta er ekki HFF þá veit eg ekki hvað.
Vona að jólaandinn finni mig á morgun.
Vona að jólaandinn finni mig á morgun.
18. desember 2011
Óveður
18. desember: Nú ÞARF ég að fara að klára jólagjafakaupin, ótrúlega margar gjafir sem ég á eftir að finna.
Við fórum yfir heiðina í morgun til að sækja sætu spætuna sem hafði fengið leyfi til að gista hjá bestu frænku. Veðrið var nú ekkert að leika við okkur, mikill skafrenningur mest alla leið, heldur verra á leiðinni til baka en austur.
Á meðan minnsta skyggnið var þurftum við að keyra á 30 km/klst. Ekki mínar uppáhaldsaðstæður, verð að segja það.

Akstur,
Fjölskyldan,
veður
17. desember 2011
17. desember: Hér er búið að vera mikið stuð í kvöld en heimasætan fékk vini sína í heimsókn. Þau skreyttu piparkökur, pökkuðu inn gjöfum til hvers annars og föndruðu. Ég gerði pizzudeig sem þau settu svo á eftir sínum smekk. Eðalkrakkar allt saman.
Jólagjafirnar til barnanna í fjölskyldunni minni voru afgreiddar í dag. Ég er komin með hugmynd að gjöfum fyrir systkini mín en ekki alveg ákveðið ennþá. Svo er auðvitað gjöfin til m+p eftir, alltaf svolítið erfitt að finna eitthvað fyrir fólk sem á allt.
Heilabúið í mér er nú alveg steikt þessa dagana (vinnuálag, ekki spurning), ég sagði í gær að það væru nokkur ár síðan ég fór síðast til útlanda, það var auðvitað vinnuferð í sumar en hún telst eiginlega ekki með einmitt vegna þess að þetta var vinnuferð.

16. desember 2011
Ferðalag
16. desember: Ég hef nú aldrei stigið fæti á skemmtiferðaskip en á það örugglega eftir einhverntímann. Það er örugglega skemmtilegt að sigla á milli framandi staða á falllegu skipi og njóta lífsins. Mér finnst það samt svolítið ellilífeyris... eitthvað og ætla að geyma það í nokkur ár í viðbót. Mig langar til Frakklands, helst út í sveit í einhver krúttleg þorp. Mig langar alltaf til Ítalíu, dásamlegt land. Svo eru norðurlöndin alltaf spennandi, sérstaklega Danmörk, þar finnst mér svo heimilislegt að vera. Ég er samt mest af öllu heimakær og finnst hvergi betra að vera en heima hjá mér. Nú eru komin nokkur ár síðan ég fór síðast til útlanda og nú fer að koma tími á næstu ferð.
kl.
22:46
Engin ummæli:
15. desember 2011
Kökubakstur
15. desember: Það er nú pínu skondið hvað myndirnar á dagatalinu passa oft við daginn minn, sérstaklega af því að ég opna það ekki fyrr en seint á kvöldin. Mynd dagsins er af krúttlegri dúkku sem heldur á tertu. Góð vinkona mín úr vinnunni er að fara að halda stúdentaveislu í næstu viku og ætlaði að baka kransaköku. Ég bauðst til að hjálpa henni, ekki af því að ég geti bætt einhverju við þekkingu hennar á kransakökubakstri, heldur til að læra þessa list. Hún bakar nefnilega bestu kransakökur sem ég hef smakkað.
Við notuðum pulsustútinn sem önnur samstarfskona mín keypti fyrir mig í Ammeríku í haust. Þetta heppnaðist svona ljómandi vel, þ.e. eftir að við sáum að bæði hnífurinn og sigtið áttu að vera inni í hakkavélinni.
Þetta er höndin á sætu spætunni en hún vildi auðvitað hjálpa til þegar uppáhaldskennarinn hennar var í heimsókn.
Ég er alveg búin að reyna mitt besta til að standa við stóru orðin frá því í síðustu viku að hætta í síðasta lagi kl. 4 í vinnunni og koma mér heim. En ég skil ekki hvað er mikið að gera, það er nú ekki eins og það séu próf fyrir jól í 4. bekk. Aðaltíminn núna fer í að prenta út dagatöl sem ég lét 6. bekk gera í tölvutímum í nóvember og desember. Stóri prentarinn er bilaður og ég verð að nota þann litla og hann er svo leeeeeeengi að prenta að ég er að verða biluð að bíða eftir honum. En kl. hálfsjö í kvöld var ég loksins búin að prenta allt sem tilbúið var. Nú klára þeir síðustu á morgun, það eru ekki nema svona 4 sem eiga eitthvað eftir.

14. desember 2011
Bæjarferð
14. desember: Fór með bekkinn minn í bæjarferð í dag. Við höfum verið að læra um byggingar í Reykjavík og sögu þeirra síðan um miðjan nóvember og lokaatriðið í fræðslunni var að fara með strætó niður í bæ og skoða augliti til auglitis þessar byggingar. Ferðin gekk vonum framar en ég var með úrvalsaðstoðarfólk með mér enda engin leið að fara ein með þetta lið í bæinn.
Álfaleikurinn í vinnunni endaði í dag og ég var orðin alveg viss hver væri hrekkjuálfurinn minn og það kom svo auðvitað í ljós að ég hafði rétt fyrir mér (en ekki hvað?) Álfurinn minn vissi af fælni minni á fjólubláan lit og notfærði sér það óspart, gaf mér fjólubláar jólakúlur, fjólubláan Tópas, fjólublátt naglalakk og á meðan ég var í bænum í morgun litaði hún (eða hjálparálfarnir hennar) alla töfluna hjá mér fjólubláa og stráði fjólubláum pallíettum á kennaraborðið mitt.

13. desember 2011
Heilagur tími
13. desember: Ég og sæta spætan ókum að pósthúsinu í dag og settum jólakortin í póst. Það var nú auðvitað röð við kassann en sem betur fer var enginn á undan mér sem fór að pakka inn gjöfum við afgreiðsluborðið eins og ég hef lent í. Ég var búin að kaupa frímerki á allt innanlands þannig að sá bunki fór póstnúmeraraðaður með teygju beint í kassann við afgreiðsluborðið. Þá þurfti ég bara að kaupa 6 frímerki til Norðurlanda og eitt til Bandaríkjanna. Við hjálpuðumst svo að við að líma þetta á.
Helgileikurinn heppnaðist svona líka vel í morgun, allir í sínu fínasta skapi og léku þetta óaðfinnanlega. Sætu systurnar sáu um undirleik og stóðu sig auðvitað frábærlega. Mikið er ég feginn að það er frá. Þá er það bara bæjarferðin á morgun til að klára Reykjavíkurþemað okkar sem við byrjuðum á um miðjan nóvember. Svo vil ég nú bara fara að senda þessi börn í jólafrí en það eru víst nokkrir dagar eftir enn.
Er í einhverju stríði við blogger, síðan vill ekki taka við myndbandinu af heimasætunni spila á fiðlu. Reyni aftir síðar.
Helgileikurinn heppnaðist svona líka vel í morgun, allir í sínu fínasta skapi og léku þetta óaðfinnanlega. Sætu systurnar sáu um undirleik og stóðu sig auðvitað frábærlega. Mikið er ég feginn að það er frá. Þá er það bara bæjarferðin á morgun til að klára Reykjavíkurþemað okkar sem við byrjuðum á um miðjan nóvember. Svo vil ég nú bara fara að senda þessi börn í jólafrí en það eru víst nokkrir dagar eftir enn.
kl.
23:20
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
jól,
Vinnan
12. desember 2011
Barnalán
12. desember: Stelpurnar mínar tvær eru svo frábærar að það hálfa væri nóg. Móðurhlutverkið er nú bara þannig að maður getur aldrei verið viss hvort maður er að gera réttu hlutina, oft kemur það ekki í ljós fyrr en löngu seinna, jafnvel mörgum árum seinna. Nú er sú eldri að nálgast fullorðinsár og sú yngri farin að stálpast og ég verð að segja að þær eru báðar afbragðseintök af manneskjum, skapgóðar, ákveðnar, góðhjartaðar, réttsýnar, kraftmiklar og hæfileikaríkar á mörgum sviðum. Ég held bara svei mér þá að ég verði að klappa mér aðeins á bakið, ég hef greinilega gert eitthvað rétt. Svo á ég auðvitað svolítið í einni í viðbót en stjúpdóttir mín er alveg í stíl við hinar, einstaklega vel gerð og frábær ung kona sem fer nú vonandi að komast heim af sjúkrahúsinu.
Í kvöld voru jólatónleikar tónskólans sem þær stunda nám við. Önnur á fiðlu en hin á þverflautu. Sú yngri var að byrja þverflautunámið nú í september og náði strax góðum tökum á hljóðfærinu sem er nú ekki það auðveldasta í heimi. Hún spilaði eins og engill á fyrstu tónleikunum sínum. Svona videoskrár eru svo stórar og lengi að hlaðast inn að ég held ég setji lag heimasætunnar inn á morgun.
Þær ætla að spila undir fyrir mig á helgileiknum hjá bekknum mínum á morgun, eins gott að nýta þessa tónlistarmenntun sem við höfum borgað fleiri tugi ef ekki hundruðir þúsunda fyrir, því ekki fá þær þessa menntun í skólanum sínum sem hefur ekki haft tónmenntakennslu í mörg ár.

23:17
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
jól,
Vinnan
11. desember 2011
Dótakassinn
11. desember: Ég er búin að komast að því að jólagjafaóskalistinn minn er svo fáránlega dýr að það er ekki séns að ég fái neitt af honum í jólagjöf. Ég bjó til borð á Pinterest fyrir jólagjafalistann minn bara svona upp á grínið, kannski bæti ég líka einhverjum skynsamlegum gjöfum inn á hann smátt og smátt fram að jólum.
Ég prófaði aftur að stífa dúka með sykurvatni í dag. Var búin að fá leiðbeiningar frá áreiðanlegu fólki um sykurlöginn en leiðbeiningarnar fólust í því að það þyrfti að setja sykurinn út í sjóðandi vatn eða sjóða vatnið og sykurinn saman í smá stund. Ég reyndi sem sagt báðar aðferðir og í stuttu máli var árangurinn ekki glæsilegur. Það fer nú alveg að líða að því að ég sæki trélímið!
Svona leggst dúkurinn niður nokkrum sekúndum eftir að ég tek hann af skálinni. Þetta er nú alveg hætt að vera fyndið.
Heimasætan og hundkvikyndið kúrðu saman og horfðu á sjónvarpið í gærkvöldi, svo sæt saman. Honum finnst svo gott að kúra undir sæng. Við erum nýbúin að hækka hitann í forstofunni og þá rauk gólfhitinn upp, núna finnst honum æði að liggja á forstofugólfinu og njóta hitans.
Stekkjastaur kemur í nótt, whoop whoop, ætli ég fái eitthvað í skóinn?

Handavinna,
Hundahald,
jól,
Krúttlegt,
Pinterest
10. desember 2011
Línudans
10. desember: Lífið er línudans. Í dag hitti ég góða vinkonu sem býr langt í burtu og við áttum indæla stund saman, spjölluðum um heima og geima. Í dag kom líka í ljós að stjúpdóttir mín sem liggur á sjúkrahúsi eftir aðgerð verður ekki eins fljót að jafna sig og við vonuðum. Vonandi lagast hún sem fyrst, börnin hennar bíða spennt eftir henni og hún er ekki vön að slá slöku við.
Í dag fórum við líka í afmælisboð til mágkonunnar kæru og fengum heitt súkkulaði og kökur, ekki amalegt það.
Í dag var fyrsta alvöru vetrarveðrið hér í borginni, skafrenningur og þæfingur á götunum. Alltaf gott á svoleiðis dögum þegar allir eru komnir í hús, eins veðurhrædd og ég er. Þegar vetrarveðrin geysa vil ég bara hafa allt mitt fólk hjá mér og njóta samvista við það, alls ekki taka neina áhættu.

23:47
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Afmæli,
Akstur,
Fjölskyldan,
heilsa,
jól
9. desember 2011
jólahreingerning
9. desember: Ég rétt náði þessu inn fyrir miðnætti. Það væri synd að fara að klikka á þessu verkefni núna. Kennsludagurinn var með þeim erfiðari því við vorum að æfa fyrir helgileikinn og það eru alltaf einhverjir vitringar sem eiga bágt með að standa kyrrir og fylgjast með. Þegar ég kom heim fór ég á fullt að þrífa stofuna og holið. Nú er ég að horfa á IQ með Meg Ryan og Tim Robbins, yndisleg mynd og gott mótvægi við vitringana í vinnunni.
Ég ætla að reyna mitt besta til að ná jólaandanum hingað í hús um helgina. Halda áfram að þrífa, baka svolítið, kannski föndra með sætu spætunni, kíkja í jólakaffi til bestu mágkonu. Svona sitt lítið af hverju vegna þess að hamingjan felst í litlu hlutunum í lífinu.
kl.
23:48
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Afmæli,
Bakstur,
Fjölskyldan,
jól
8. desember 2011
Jólakortin tilbúin
8. desember: Veit eiginlega ekki hvað er á þessari mynd og ég er svo þreytt eftir daginn (æfingar fyrir helgileikinn og friðarstillingar eftir frímínútur taka á taugarnar) að mér er eiginlega alveg sama. Það besta við þetta dagatalsverkefni er að ég tek fram myndavélina á hverjum degi, þó ég taki fáar myndir.
Ég eyddi góðri stund í að skrifa jólakortin í kvöld, bara jólatónlist og kósí. Sæta spætan og ég fengum okkur mjólk og smákökur þegar við komum heim úr skólanum. En ég ætla bara snemma að sofa í kvöld, það er nefnilega margt skemmtilegt á dagskránni um helgina.

22:37
Engin ummæli:
7. desember 2011
Fjáröflun
7. desember: Jæja þá er best að setja á sig ökumannshanskana og dreifa fjáröflunardótinu sem fólkið mitt var svo elskulegt að kaupa af sætu spætunni fyrir fimleikafélagið hennar.
Ég náði loksins að taka síðustu myndina af heimasætunni fyrir hin árlegu dagatöl núna áðan. Ég hef í u.þ.b. 15 ár gert dagatöl með myndum af stelpunum til að gefa ömmum og öfum í jólagjöf. Þetta er orðið ómissandi í jólaundirbúningnum og ég verð alltaf fljótari og fljótari að þessu. Bæði núna og fyrir síðustu jól hef ég notað prentþjónustuna jola.is og hef verið afskaplega ánægð með framkvæmdina hjá þeim.

17:20
Engin ummæli:
6. desember 2011
Erill
Er svo þreytt eftir kennsluna, fundinn og útsaumsnámskeiðið í kvöld að ég verð að setja inn dagatalsmynd dagsins á morgun.
Það sem ég þrái jólafrí núna og það hjálpar nú ekki til að þurfa sífellt að vera að leysa snjóstríðsvandamál hjá nemendum mínum. Umsjónarkennarastarfið er ekki alltaf dans á rósum.
kl.
23:30
Engin ummæli:
5. desember 2011
Hreyfing
5. desember: Það er nú ekki hægt að fara út að hjóla þessa dagana en veðrið hefur verið yndislegt til að fá sér smá göngutúr og ég þurfti einmitt á því að halda eftir glímuna við misvitra einstaklinga í dag, maður fær svo sannarlega alla mannlega flóru inn í grunnskólana (Í hvaða mánuði er 17. júní? Getiði svarað því? Ekki þessi einstaklingur!). En göngutúrinn er líka liður í því að tábergssigið mitt verði eins aumt og bólgið og mögulegt er fyrir miðvikudaginn en þá á ég tíma hjá lækni og vona að hann geti séð hvað er að og kannski eitthvað hjálpað mér. Í haust hefur þetta versnað til muna, ég fer einn göngutúr með hundinn og er hölt í tvo daga á eftir með tilheyrandi verkjum í hverju skrefi.
Annars fór helgin í sjúklinga, elsku mamma þrírifbeinsbrotin, stjúpdóttlan fárveik á spítala og litla sæta frænka viðbeinsbrotin. Þetta flokkast vonandi undir "Allt er þá þrennt er" og verður ekki meira í bili!
Ég fékk upplýsingar um hvernig á að stífa dúka með sykurvatni í dag. Ætli ég reyni ekki einu sinni enn að búa til skál úr prjónuðu dúkunum mínum.

23:08
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Handavinna,
heilsa,
Hreyfing,
jól,
Vinnan
4. desember 2011
Útsaumur
4. desember: Ég hef nú ekki verið að smíða um helgina, nema það að negla nagla í vegg teljist smíðar. Ég hengdi semsagt upp ljósmynd sem hefur staðið á hillu hjá mér í rúmt ár, og það tók örugglega alveg eina mínútu að ljúka við þetta. Ég þoli ekki svona slóðaskap, ég er alltaf að reyna að taka mig á og klára þau verkefni sem ég byrja á eða þarf að ditta að hér heima, þetta er svo lítið mál þegar maður byrjar loksins.
Í haust höfum við systur verið á útsaumsnámskeiði hjá Helgu Jónu í Nálinni. Ég er að sauma mér handavinnupoka úr ótrúlega fínlegum hör sem ég átti í erfiðleikum með að sjá almennilega og frestaði því að halda áfram með, en tímarnir eru á 5-6 vikna fresti. Nú er síðasti tíminn í næstu viku og ekki seinna að vænna að halda áfram, ég brá mér því inn í Tiger á Laugavegsröltinu í gær og keypti mér útsaumsgleraugu. Nú get ég saumað eins og mig lystir. Ég þarf líka að klára prjónaveskið mitt með smá útsaumi og svo er það kaffidúkurinn á eldhúsborðið sem ég byrjaði á fyrir nokkrum árum og prjónaveskið.
Ég gerði auðvitað eins og mér var kennt á Spáni í sumar að velja hlutinn sem er minnst eftir af því hann er vinsælastur og þar með flottastur. Glæsileg gleraugu, ekki satt?

21:32
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Handavinna,
jól,
útsaumur
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)