17. desember 2011

17. desember: Hér er búið að vera mikið stuð í kvöld en heimasætan fékk vini sína í heimsókn. Þau skreyttu piparkökur, pökkuðu inn gjöfum til hvers annars og föndruðu. Ég gerði pizzudeig sem þau settu svo á eftir sínum smekk. Eðalkrakkar allt saman.

Jólagjafirnar til barnanna í fjölskyldunni minni voru afgreiddar í dag. Ég er komin með hugmynd að gjöfum fyrir systkini mín en ekki alveg ákveðið ennþá. Svo er auðvitað gjöfin til m+p eftir, alltaf svolítið erfitt að finna eitthvað fyrir fólk sem á allt.

Heilabúið í mér er nú alveg steikt þessa dagana (vinnuálag, ekki spurning), ég sagði í gær að það væru nokkur ár síðan ég fór síðast til útlanda, það var auðvitað vinnuferð í sumar en hún telst eiginlega ekki með einmitt vegna þess að þetta var vinnuferð.

2 ummæli:

e sagði...

Ég tók því líka þannig að vinnuferðir teljast sko ekki með frekar en ferðir þegar maður flytur til útlanda ;)

frugalin sagði...

Nákvæmlega, dýrðlegar dekurferðir án vinnu teljast bara með.

Related Posts with Thumbnails