10. desember 2011

Línudans

10. desember: Lífið er línudans. Í dag hitti ég góða vinkonu sem býr langt í burtu og við áttum indæla stund saman, spjölluðum um heima og geima. Í dag kom líka í ljós að stjúpdóttir mín sem liggur á sjúkrahúsi eftir aðgerð verður ekki eins fljót að jafna sig og við vonuðum. Vonandi  lagast hún sem fyrst, börnin hennar bíða spennt eftir henni og hún er ekki vön að slá slöku við.

Í dag fórum við líka í afmælisboð til mágkonunnar kæru og fengum heitt súkkulaði og kökur, ekki amalegt það.

Í dag var fyrsta alvöru vetrarveðrið hér í borginni, skafrenningur og þæfingur á götunum. Alltaf gott á svoleiðis dögum þegar allir eru komnir í hús, eins veðurhrædd og ég er. Þegar vetrarveðrin geysa vil ég bara hafa allt mitt fólk hjá mér og njóta samvista við það, alls ekki taka neina áhættu.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails